Fótbolti

Heimir segir dýr­mætt að forðast fall

Sindri Sverrisson skrifar
Heimir Hallgrímsson heilsar upp á nýliðann Rocco Vata, 19 ára sóknarmann Watford, á æfingu í Búlgaríu.
Heimir Hallgrímsson heilsar upp á nýliðann Rocco Vata, 19 ára sóknarmann Watford, á æfingu í Búlgaríu. Getty/Stephen McCarthy

Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Íra, segir að burtséð frá vangaveltum um möguleika á að komast í lokakeppni EM 2028 þá sé einfaldlega dýrmætt fyrir írska liðið að vinna Búlgaríu og forðast fall niður í C-deild Þjóðadeildarinnar í fótbolta.

Heimir er með Íra í svipuðum sporum og Ísland stendur nú í. Á meðan að íslenska liðið reynir að forðast fall úr B-deild með því að vinna einvígi sitt gegn Kósovó (leikið í Kósovó á morgun og á Spáni á sunnudag) þá reyna Írar að forðast fall með sigri gegn Búlgaríu.

Það má alveg deila um það hvort sæti í B- eða C-deild gefi meiri möguleika á að komast í lokakeppni EM 2028 en sú keppni fer einmitt fram á Írlandi, í Wales, Skotlandi og Englandi. Búast má við að heimaþjóðirnar fái tvö örugg sæti á mótinu en UEFA hefur ekki tekið ákvörðun um það.

Heimir sagði við írska fjölmiðla í dag að burtséð frá öllum EM-pælingum þá væri einfaldlega nauðsynlegt fyrir Íra að halda sér í B-deild og mæta þar mun sterkari liðum en í C-deild.

„Þurfum að spila við eins sterk lið og hægt er“

„Skiptir þetta máli? Að mínu mati þá þurfum við að spila við eins sterk lið og hægt er hverju sinni og þróast sem lið. Þess vegna er B-deildin mikilvæg fyrir okkur,“ sagði Heimir.

„Það eru skiptar skoðanir og ég virði það en ég tel það mjög mikilvægt að við höldum okkur í B-deildinni og spilum við hærra skrifuð lið,“ sagði Heimir.

Tilbúinn að gefa nýliðum tækifæri

Hann segir þó ekki loku fyrir það skotið að leikirnir við Búlgaríu verði að einhverju leiti nýttir til að skoða nýja leikmenn. Í írska hópnum eru til að mynda Jimmy Dune, varnarmaður QPR, og Rocco Vata, sóknarmaður Watford, sem vonast eftir sínum fyrsta A-landsleik.

„Tilraunir já, við erum með leikmenn sem eiga ekki landsleik og myndum vilja sjá þá spreyta sig. Við kölluðum inn leikmenn sem við teljum tilbúna að spila, þess vegna eru þeir í hópnum. Þetta er um leið tækifæri til að gefa leikmönnum sénsinn því þetta er ekki þannig að við eigum á hættu að fórna öllu í þessum leik,“ sagði Heimir.

„En sem hópur þá viljum við halda okkur í B-deildinni og spila við betri lið,“ bætti hann við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×