Körfubolti

Síðasti séns Keflvíkinga: „Menn eiga að njóta“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Sigurður Ingimundarson segir sínum mönnum til.
Sigurður Ingimundarson segir sínum mönnum til. Vísir/Hulda Margrét

Sigurður Ingimundarson, þjálfari karlaliðs Keflavíkur í körfubolta, var nokkuð léttur þegar íþróttadeild náði tali af honum í morgun. Keflavík er með bakið upp við vegg og tímabilið undir þegar liðið mætir Stjörnunni í kvöld.

Allt er undir hjá Keflavík í leik kvöldsins sem fram fer í Blue-höllinni í Reykjanesbæ. Vinnist leikurinn ekki er draumurinn um sæti í úrslitakeppninni úti. Það yrði mikið reiðarslag enda Keflavík átt fast sæti í úrslitakeppninni árlega í 39 ár, frá árinu 1986.

Sigurður er spenntur og vonast til að leikmenn liðsins séu það einnig.

„Mér líður bara vel. Menn eiga að njóta þess að spila svona leiki sem skipta öllu máli og sjá úr hverju menn eru gerðir. Undirbúningurinn hefur verið nokkuð góður og beinst að þessum leik. Menn eru bara klárir í slaginn, svona flestir, svo við erum bara í toppmálum,“ segir Sigurður í samtali við íþróttadeild.

Menn séu þá ekki hugsa um að svara fyrir stórtap liðsins fyrir Tindastóli fyrir viku síðan. Keflvíkingar voru arfaslakir á Sauðárkróki og töpuðu stórt en sá leikur sé kominn í baksýnisspegilinn.

„Menn eru nú ekkert að hugsa um það lengur. Það er bara búið. Það lenda öll lið stundum í lélegum leikjum og að vera jarðaðir. Við erum ekkert að spá í því, það er bara næsta og leikurinn í kvöld sem allir eru að einblína á,“ segir Sigurður.

Andstæðingur kvöldsins er ekki af verri gerðinni. Stjarnan getur farið upp fyrir Tindastól á topp deildarinnar með sigri í kvöld og tekið stórt skref í átt að deildarmeistaratitlinum. Sigurður vonast eftir stuðningi og að menn nýti aukna spennu á réttan hátt.

„Það ætla ég rétt að vona, að það sé auka spenna og að menn geri extra mikið til að ná góðum úrslitum. Ég á von á því að Keflvíkingar fjölmenni á völlinn og styðji sitt lið.“

Keflavík og Stjarnan mætast klukkan 19:30 í kvöld og verður leikurinn sýndur beint á Stöð 2 Sport. Einnig fer fram leikur ÍR og Hattar klukkan 18:30 sem er á Stöð 2 Sport 5.

Öll umferðin í deildinni verður gerð upp í Körfuboltakvöldi strax að leik Keflavíkur og Stjörnunnar loknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×