Körfubolti

Brá þegar hún heyrði smellinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hulda Björk Ólafsdóttir var með 11,6 stig að meðaltali í leik í Bónus-deildinni í vetur.
Hulda Björk Ólafsdóttir var með 11,6 stig að meðaltali í leik í Bónus-deildinni í vetur. vísir/ernir

Hulda Björk Ólafsdóttir, fyrirliði Grindavíkur í Bónus deild kvenna í körfubolta, meiddist illa á dögunum. Hún ætlar að flýta sér hægt í endurkomunni.

Hulda sleit krossband í hné í fyrsta leik Grindavíkur og Hauka í átta liða úrslitum Bónus deildarinnar og verður frá keppni næstu mánuðina.

„Þetta er ógeðslega fúlt og súrt og ég ætla ekkert að leyna því. Þetta er leiðinlegt en ég mun hvetja liðið mitt áfram á bekknum og klára þetta tímabil,“ sagði Hulda í samtali við Stefán Árna Pálsson í íþróttafréttum Stöðvar 2.

Hulda segist strax hafa fundið fyrir miklum sársauka þegar krossbandið gaf sig.

Tekur sér sinn tíma

„Þetta var ógeðslega vont en mér brá bara. Smellurinn var svo mikill. Þetta var sjokk hjá mér,“ sagði Hulda. Við tekur löng endurhæfing hjá henni.

„Ég vil ekki setja neinn tímaramma á mig. Ég ætla bara að taka minn tíma. Ég fer í aðgerð í maí svo verð ég bara að sjá hvernig ég verð.“

Grindavík endaði í 8. sæti Bónus deildarinnar og tryggði sér ekki sæti í úrslitakeppninni fyrr en í lokaumferðinni. En Grindvíkingar komu flestum á óvart með því að vinna fyrstu tvo leikina gegn deildarmeisturum Hauka í átta liða úrslitunum.

„Ég er ótrúlega stolt af stelpunum og þegar ég var uppi á slysó var ég að horfa á leikinn og hvetja þær áfram og öskraði liggur við þegar þær unnu. Þannig ég er ánægð með þær og stolt af þeim,“ sagði Hulda sem viðurkennir að það sé erfitt að horfa á leikina af hliðarlínunni.

„Það er svolítið súrt en eins og ég segi: Ég er stolt af þeim og smá meyr hvað þær eru standa sig.“

Ætla sér alla leið

Þrátt fyrir að misjafnlega hafi gengið í vetur segir Hulda að Grindavíkurliðið sé gott og geti gert tímabilið eftirminnilegt.

„Klárlega, við erum með hörkuleikmenn og þegar við spilum saman erum við illviðráðanlegar þannig við ætlum bara að reyna að fara alla leið,“ sagði Hulda að lokum en viðtalið við hana má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

Grindavík getur tryggt sér sæti í undanúrslitum þegar liðið mætir Haukum í fjórða sinn í dag. Leikurinn hefst klukkan 17:00 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×