Erlent

Mögu­lega hafi „eins konar ástar­sorg“ spilað inn í

Jón Þór Stefánsson skrifar
Hjónin Gene Hackman og Betsy Arakawa árið 1986.
Hjónin Gene Hackman og Betsy Arakawa árið 1986. Getty

Réttarmeinafræðingur telur mögulegt að annað hvort hafi bandaríski stórleikarinn Gene Hackman eða eiginkona hans Betsy Arakawa látist vegna streitu við það að sjá hitt þeirra látið.

People ræddi við James Gill, meinafræðiforstjóra í Connecticut-ríki Bandaríkjanna, um andlát hjónanna, sem var uppgötvað í síðustu viku, en talið er að þau hafi verið látin á heimili sínu í Santa Fe, Nýju Mexíkó, um margra daga skeið.

„Miðað við kringumstæðurnar eins og þær birtast okkur nú í upphafi virðist sem hann hafi fallið til jarðar,“ segir Gill.

„Hann átti sögu um hjartasjúkdóma og var með gangráð, þannig það væri ekki óvenjulegt. En það sem er hins vegar óvenjulegt er hvers vegna hnígur hún niður líka? Ef við gefum okkur það að hún hafi fundið hann, þá byrjar maður að velta fyrir sér: Það er til fyrirbæri þar sem streitan af því að sjá einhvern nákominn manni deyja veldur líka mans eigin andláti með náttúrulegum hætti.“

Einnig segir Gill mögulegt að Arkawa hafi dáið á undan og Hackman komið að henni látinni. 

„Það er alveg jafn líklegt. Hann var eldri og hafði glímt við hjartavandamál. Krufningin ætti að leiða í ljós hvort hún hafi verið með veikindi í hjarta, krabbamein, eða eitthvað annað sem hafi dregið hana til dauða.“

Gill segir að vitað sé til þess að náttúrleg andlát tveggja á mjög svipuðum tíma hafi átt sér stað. „Næstum því eins konar ástarsorgar-dæmi.“

„Að skyndilega finna einhvern sem þér þykir vænt um látinn á gólfinu eykur adrenalínið og lætur hjartað þitt slá fastar, og það getur sett hjartað í óreglulegan takt.“

Þó tekur Gill fram að krufningin muni að öllum líkindum leiða sannleikann í málinu í ljós.


Tengdar fréttir

Gaseitrun talin ólíkleg þrátt fyrir gasleka

Rannsókn gasfyrirtækis á heimili bandaríska stórleikarans Gene Hackman í Santa Fe hefur leitt í ljós að minniháttar gasleki var til staðar frá eldavélarhellu. Þrátt fyrir það er ekki talið að gaslekinn hafi átt þátt í andlátum Hackman og eiginkonu hans, Betsy Arakawa píanóleikara.

Segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu

Leslie Hackman dóttir stórleikarans Gene Hackman segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu áður en hann fannst látinn. Hún segir ekki hafa merkt neitt undarlegt í samskiptum við föður sinn áður en hann lést.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×