Innlent

Tók að sér að skipta búi móður sinnar og hafði tugi milljóna af því

Árni Sæberg skrifar
Málið verður rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
Málið verður rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Vísir/Vilhelm

Sjötugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að draga sér fjörutíu milljónir króna úr dánarbúi móður sinnar. Hann lagði meðal annars fimm milljónir króna inn á dóttur sína af reikningi búsins.

Í ákæru Héraðssaksóknara á hendur manninum segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir fjárdrátt, en til vara umboðssvik, með því að hafa misnotað aðstöðu sína sem umboðsmaður erfingja í einkaskiptum á dánarbúi móður sinnar.

Hann hafi dregið sér í sjö tilvikum og notað heimildarlaust, í eigin þágu og annarra, fjármuni af bankareikningi dánarbúsins, samtals 40,3 milljónir króna, með reiðufjárúttektum og millifærslum.

Móðir hans hafi látist í desember árið 2018 og Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu hafi verið tilkynnt um andlátið með tilkynningu í janúar 2019. Sýslumaður hafi veitt erfingjum leyfi til einkaskipta með bréfi dagsettu í maí sama ár. Umboðsmaður erfingja hafi verið maðurinn. Dánarbúið hafi samkvæmt kröfu sýslumanns verið tekið til opinberra skipta með úrskurði Héraðsdóms Reykjavikur í janúar 2022.

Þá hafi hann verið ákærður fyrir peningaþvætti með því að nýta sér eða öðrum og ráðstafa ávinningi af brotum sem honum var gefin að sök samkvæmt fyrsta lið ákærunnar.

Það hafi hann gert með því að leggja fimm milljónir króna inn á reikning dóttur sinnar og að hafa millifært fjórtán milljónir króna af eigin reikningi yfir á annan eigin reikning.

Þess er krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×