Skoðun

Leið­togi nýrra tíma

Auður Kjartansdóttir, Bjarnveig Guðbrandsdóttir, Brynhildur Einarsdóttir, Guðrún Ingadóttir, G. Sirrý Ágústsdóttir, Hafdís Gunnarsdóttir, Jónas Kári Eiríksson, Júlíus Guðni Antonsson, Ragnhildur Eva Jónsdóttir og Róbert Smári Gunnarsson skrifa

Það voru tíðindi þegar Bjarni Benediktsson tilkynnti í upphafi árs að hann hygðist ekki sækjast eftir áframhaldandi formennsku í Sjálfstæðisflokknum. Um leið markaði það upphaf tímamóta og kaflaskila í sögu Sjálfstæðisflokksins.

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins verður haldinn um næstu helgi sem er jafnframt stærsta samkoma stjórnmálaafls í landinu. Þar koma saman rúmlega tvö þúsund Sjálfstæðismenn af öllu landinu til að móta stefnu flokksins og kjósa sér nýja forystu. Nú hafa tveir öflugir frambjóðendur boðið sig fram í embætti formanns Sjálfstæðisflokksins. Annar þeirra er Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og geta flokksmenn svo sannarlega fagnað framboðinu því hér fer fram einn kraftmesti, atorkusamasti og duglegasti þingmaður okkar Íslendinga. Árangurinn sem hún hefur náð á vettvangi stjórnmálanna síðastliðinn áratug er aðdáunarverður.

Við í Norðvesturkjördæmi getum sérstaklega fagnað framboðinu því fáir ráðherrar hafa sinnt landsbyggðinni af jafn miklum krafti og Áslaug Arna gerði í ráðherratíð sinni. Hún hefur verið iðin við að færa starfsemi skrifstofunnar sinnar um land allt ólíkt öðrum ráðherrum. Fyrir vikið þekkir hún vel tækifæri og áskoranir hvers svæðis fyrir sig. Hún er í góðum tengslum við grasrótina í flokknum í öllum landshlutum og hefur þar byggt upp mikið traust.

Áslaug Arna hefur sett sig inn í málefni fjölskyldna og fyrirtækja, hún hefur alla tíð talað máli atvinnulífs og vill einfalda rekstrarumhverfi lítilla og meðalstórra fyrirtækja ásamt því að efla uppbyggingu nýsköpunar á landsvísu. Í störfum sínum hefur hún lagt mikla áherslu á málefni háskólanna og aukið tækifæri fólks á landsbyggðinni til að sækja sér menntun og eflt þannig byggðir landsins.

Áslaug Arna vill sameina Sjálfstæðisflokkinn og hún býr yfir þeim einstöku hæfileikum að leiða ólíkt fólk saman. Hún vill einfalda og straumlínulaga flokksstarfið og færa það nær félögum og sveitarstjórnarfólki um allt land. Sjálfstæðisflokkurinn þarf að sækja fram og styrkjast. Til þess þarf traustan leiðtoga sem þekkir ólík svæði utan síns kjördæmis. Þetta er einmitt sú þekking sem Áslaug Arna hefur aflað sér með ótal mörgum heimsóknum sínum um landið, í öll kjördæmi.

Áslaug Arna er með skýra framtíðarsýn fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Ísland. Hún vill Sjálfstæðisflokk sem stendur traustur á sínum grunngildum: frelsi einstaklingsins, minna ríkisvald og öflugt atvinnulíf um land allt. Það eru nýir og spennandi tímar framundan í Sjálfstæðisflokknum og það er enginn betri til að leiða flokkinn áfram en Áslaug Arna.

Við treystum Áslaugu Örnu.

Höfundar eru Sjálfstæðismenn úr Norðvesturkjördæmi.

Auður Kjartansdóttir, Snæfellsbæ

Bjarnveig Guðbrandsdóttir, Vesturbyggð

Brynhildur Einarsdóttir, Flateyri

Guðrún Ingadóttir, Borgarbyggð

G. Sirrý Ágústsdóttir, Bíldudal

Hafdís Gunnarsdóttir, Ísafirði

Jónas Kári Eiríksson, Akranesi

Júlíus Guðni Antonsson, Húnaþingi vestra

Ragnhildur Eva Jónsdóttir, Borgarbyggð

Róbert Smári Gunnarsson, Skagafirði




Skoðun

Skoðun

Leið­togi nýrra tíma

Auður Kjartansdóttir,Bjarnveig Guðbrandsdóttir,Brynhildur Einarsdóttir,Guðrún Ingadóttir,G. Sirrý Ágústsdóttir,Hafdís Gunnarsdóttir,Jónas Kári Eiríksson,Júlíus Guðni Antonsson,Ragnhildur Eva Jónsdóttir,Róbert Smári Gunnarsson skrifar

Sjá meira


×