Skoðun

Bar­átta hafnar­verka­manna: Leiðin að viður­kenningu sem samnings­aðili

Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar

Síðan árið 2022 hafa hafnarverkamenn staðið í ströngu í baráttu sinni við Eimskip og stéttarfélagið Eflingu. Markmið þeirra hefur verið að fá viðurkennt félag hafnarverkamanna sem lögmætan samningsaðila fyrir sína félagsmenn. Þessi barátta hefur verið löng og ströng, en hún hefur einnig sýnt styrk og samstöðu meðal verkamanna.

Árið 2022 hófst baráttan þegar hafnarverkamenn áttuðu sig á því að hagsmunir þeirra voru ekki nægilega vel tryggðir í samningum sem Efling hafði gert fyrir þeirra hönd. Þeir töldu sig ekki hafa nægilegt vald til að hafa áhrif á samningaviðræður og ákváðu því að stofna sitt eigið félag. Þetta félag skyldi verða rödd þeirra í samningaviðræðum og tryggja að þeirra sjónarmið væru virt.

Árin 2023 og 2024 voru krefjandi fyrir hafnarverkamennina. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að ná samkomulagi við Eimskip (SA) og Eflingu (ASI) stóðu þeir frammi fyrir hindrunum. Félagið þeirra var ekki viðurkennt sem lögmætur samningsaðili, og því var þeim neitað um þátttöku í formlegum samningaviðræðum. Í stað þess að láta deigan síga ákváðu hafnarverkamenn að leita réttar síns fyrir félagsdómi. Þar var talað um að forgangsréttarákvæði væri í samningum Eflingar og Eimskips sem gerði það að verkum að aðeins eitt stéttarfélag væri á starfsvæði Eimskips, sem er ekki rétt, því þar má finna VR, Eflingu, Rafiðn og fleiri.

Ferlið fyrir félagsdómi hefur reynst langt og snúið. Þrátt fyrir að hafa gert þrjár tilraunir til að fá niðurstöðu hefur málið enn ekki verið leyst. Hins vegar er von á að dómur falli á morgun, sem gæti markað tímamót í baráttu hafnarverkamanna, en það er fjórða tilraun þeirra.

Á meðan á þessu ferli stendur hafa hafnarverkamenn haldið uppi samstöðu og baráttuvilja. Þeir hafa staðið saman í mótmælum, skrifað greinar og haldið fundi til að vekja athygli á málstað sínum. Þeir hafa einnig leitað stuðnings frá almenningi og öðrum stéttarfélögum, sem hafa sýnt þeim samstöðu og stuðning.

Ef dómurinn fellur þeim í hag á morgun gæti það orðið upphafið að nýjum kafla í sögu hafnarverkamanna. Það myndi ekki aðeins viðurkenna félag þeirra sem lögmætan samningsaðila, heldur einnig styrkja stöðu þeirra í framtíðarsamningaviðræðum. En ef málið fellur ekki með hafnarverkamönnum á morgun má með sanni segja að ekki þýði fyrir verkafólk að stofna stéttarfélag heldur aðeins atvinnurekendur, eins og hefur sýnt sig með SVEIT, sem deilur hafa staðið um núna í nokkrar vikur.

Það er von mín og ósk að málið verði félag hafnarverkamanna í vil á morgun og þessi barátta, sem hefur verið undanfarin ár, beri árangur. Þetta myndi sýna atvinnurekendum að félagafrelsi er sannarlega til staðar á Íslandi og að ekki sé hægt að skipa fólki að vera í stéttarfélagi sem hentar vinnuveitendum betur. Hver svo sem niðurstaðan verður, þá mun félag hafnarverkamanna halda baráttunni áfram og greinahöfundur setja inn efni reglulega til að minna vinnuveitendur á þá staðreynd að saman erum við sterk.

Höfundur er varaformaður Félags Hafnarverkamanna á Íslandi.




Skoðun

Sjá meira


×