Innlent

Tryggja varnir Sjúkra­trygginga eftir stór­felld fjár­svik verk­efna­stjóra

Kjartan Kjartansson skrifar
Fjársvik konunnar stóðu yfir í ellefu ár. Þau uppgötvuðust við greiningu á endurgreiðslum vegna erlends sjúkrakostnaðar síðasta vor. Konan var ákærð fyrir skjalafals í opinberu starfi.
Fjársvik konunnar stóðu yfir í ellefu ár. Þau uppgötvuðust við greiningu á endurgreiðslum vegna erlends sjúkrakostnaðar síðasta vor. Konan var ákærð fyrir skjalafals í opinberu starfi. Vísir/Vilhelm

Umfangsmikil vinna við innra eftirlit Sjúkratrygginga Íslands stendur yfir í kjölfar þess að verkefnastjóri þeirra var ákærður fyrir að svíkja á annað hundrað milljóna króna út úr stofnuninni. Tryggja á að slíkt geti ekki endurtekið sig.

Kona sem starfaði sem verkefnastjóri hjá Sjúkratryggingum var nýlega ákærð fyrir skjalafals og fjársvik í opinberu starfi vegna um 156 milljóna króna sem hún kom því til leiðar að stofnunin greiddi fjölskyldu hennar á ellefu ára tímabili. Hún er sökuð um að hafa falsað kröfur í tölvukerfi stofnunarinnar og gefa út tilhæfulausa reikninga.

Upp komst um svikin síðasta vor þegar starfsmenn Sjúkratrygginga urðu varir við misræmi í gögnum við greininar á umfangi og eðli endurgreiðslna vegna erlends sjúkrakostnaðar. Nánari skoðun leiddi til rökstudds gruns um umfangsmiklar svikagreiðslur konunnar, að því er kemur fram í skriflegu svari stofnunarinnar við fyrirspurn Vísis. Lögregla hafi verið kölluð til sem tók við rannsókn málsins.

Í ákærunni kom fram að konan hefði komið því til leiðar með blekkingum að kröfur í nafni eiginmanns hennar, sem nú er látinn, og tveggja sona hennar hefðu verið greiddar af Sjúkratryggingum án þess að stoð væri fyrir þeim.

Hluti greiðslnanna var vegna erlends sjúkrakostnaðar en konan skráði fjölskyldumeðlimi sína einnig sem fylgdarmenn ótengdra einstaklinga sem nutu læknismeðferðar erlendis. Sjúkratryggingar greiddu konunni og eiginmanni hennar samtals 43 milljónir króna.

Tveir synir hennar voru ákærðir fyrir peningaþvætti sem tóku saman við meira en 120 milljónum króna. Meirihluta þess fjár lögðu synirnir inn á reikning móður sinnar.

Í svari Sjúkratrygginga segir að ítarleg vinna við að greina aðferðirnar sem konan beitti og tryggja varnir gegn því að slíkt gæti endurtekið sig hafi hafist strax eftir að málið kom upp. Þá standi yfir umfangsmikil vinna tengd innra eftirliti stofnunarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×