Innlent

Átta ára fangelsis­vist stað­fest

Árni Sæberg og Jón Þór Stefánsson skrifa
Mohamad Kourani í Héraðsdómi Reykjaness á sínum tíma.
Mohamad Kourani í Héraðsdómi Reykjaness á sínum tíma. Vísir

Landsréttur hefur staðfest átta ára fangelsisdóm Mohamads Thors Jóhannessonar, áður Kourani. Hann var sakfelldur fyrir tilraun til manndráps með því að stinga mann í OK Market í mars í fyrra og fjölda annarra brota.

Landréttur kvað upp dóm í máli Kouranis upp úr klukkan 15.. Kourani var dæmdur í átta ára fangelsi í júlí í fyrra fyrir að reyna að ráða Mustafa Al Hamoodi, eiganda OK Market, af dögum með hnífi í mars síðastliðnum, sem og fyrir önnur brot, líkt og fyrir að hóta lögreglumanni og fjölskyldu hans lífláti, og kasta hlandi á fangaverði.

Kourani og mál sem honum tengjast hafa verið mikið til umræðu síðan hann var fyrst nafngreindur í fjölmiðlum. Það var gert í frétt Vísis í apríl í fyrra. Þá hafði hann verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fyrir stunguárásina í OK Market.

Hefur valdið vandræðum víða

Ofsóknir Kouranis á Helga Magnúsi Gunnarssyni, vararíkissaksóknara, hafa dregið dilk á eftir sér. Helgi Magnús sagði í viðtali við Vísi eftir að dómur gekk í héraði að margir fögnuðu því að Kourani væri kominn á bak við lás og slá. Ekki síst hann sjálfur enda hefði Kourani ofsótt hann um árabil.

Þá sagði hann Kourani ýkt dæmi en Íslendingar væru  í stórum stíl að flytja inn kúltur sem væri í mörgu frábrugðinn því sem þeir þekkja.

„Það eina sem stoppar þá er hnefinn, valdbeiting. Ekki er alls staðar sú sama afstaða til laga og réttar og hjá okkur. En við verðum að sætta okkur við það.“ Þessi ummæli hans voru kærð til lögreglu af samtökunum Solaris, sem berjast fyrir hagsmunum flóttafólks. Sakamálarannsókn vegna ummælana er í fullum gangi, samkvæmt heimildum Vísis.

Þá urðu ummælin til þess að Sigríður J. Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari afþakkaði vinnuframlag Helga Magnúsar og því mætir hann ekki í vinnuna þessa dagana en heldur fullum launum. Starfsmannamál hjá Ríkissaksóknara voru það fyrsta sem nýr dómsmálaráðherra fékk í fangið og enn er unnið að lausn málsins í ráðuneytinu.

Skipti um nafn

Þá vakti Kourani mikla athygli og talsverða hneykslan þegar hann breytti nafni sínu í Mohamad Th. Jóhannesson. Hann var sagður hafa litið til fyrrverandi forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessonar, þegar hann valdi nafnið og því var tekið illa af ýmsum.

Í samskiptum við Vísi, í gegnum verjanda hans, vildi Kourani ekki staðfesta að það hefði vakað fyrir honum. Hann teldi einfaldlega eðlilegt að taka upp íslenskt nafn og Thor Jóhannesson væri „eðlilegt nafn“.


Tengdar fréttir

Sakamálin sem skóku þjóðina

Gríðarlega mörg sakamál voru til umfjöllunar hér á landi árið 2024. Sjö manndrápsmál komu upp á árinu, þar sem samanlagt átta létu lífið. Af þessum átta voru þrjú mál þar sem barn lést.

„Þetta er farið að að bera meira keim af ein­elti en lög­legri stjórnsýslu”

Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari furðar sig á ákvörðun Sigríðar Friðjónsdóttur ríkissaksóknara að lýsa hann vanhæfan þrátt fyrir að ráðherra hafi í haust ekki orðið við beiðni hennar um að leysa hann frá störfum. Helgi Magnús segir þetta farið að líkjast einelti frekar en löglegri stjórnsýslu. Hann ætli að skoða sína möguleika en muni ekki taka ákvörðun um framhaldið fyrr en eftir áramót.

Kallar eftir sams konar úrræði og Breivik og árásarmaður hennar sæta

Ingunn Björnsdóttir, dósent við Óslóarháskóla og brotaþoli fólskulegrar hnífstunguárás í sama skóla, segir íslenskt réttarkerfi ráðþrota þegar kemur að alvarlegum ofbeldismálum. Sá sem stakk hana sætir svokölluðu „forvaring“, refsiúrræði í Noregi sem heimilar yfirvöldum að halda afbrotamönnum í vistun eftir afplánun fangelsisdóms. Fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik sætir sama úrræði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×