Innlent

Af­henda dóms­mála­ráð­herra skýrslu um Geirfinnsmálið í næstu viku

Lovísa Arnardóttir skrifar
Jón Ármann Steinsson einn höfundur bókarinnar.
Jón Ármann Steinsson einn höfundur bókarinnar.

Jón Ármann Steinsson bókaútgefandi vinnur nú að því, ásamt Sigurð Björgvini, að taka saman niðurstöður rannsóknar þeirra á því hver hafi myrt Geirfinn Einarsson 19. nóvember 1974. Niðurstöðurnar, og ýmis skjöl, verða afhent dómsmálaráðherra í næstu viku. Jón Ármann fór yfir málið í Reykjavík síðdegis í dag.

Jón gaf í nóvember út bókina Leitin að Geirfinni í nóvember á síðasta ári þegar það voru 50 ár frá því að Geirfinnur hvarf. Hann segir að í hana hafi þó vantað 13. kaflann. Hann vinni þeir Sigurð sérstaklega fyrir dómsmálaráðuneytið.

„Til þess að rannsaka hvaða glæpur átti sér stað í Keflavík þegar Geirfinnur hvarf 19. Nóvember 1974, hvernig rannsóknin var gerð og af hverju hún er afvegaleiðing á því sem við erum búnir að uppgötva að raunverulega gerðist. Að Geirfinnur var drepinn þetta kvöld. Við vitum hver gerði það, af hverju og hvernig yfirhylmingin átti sér stað,“ segir Jón Ármann en rætt var við hann um þennan síðasta kafla í Reykjavík síðdegis í dag.

Hann segir að miðað við þær upplýsingar sem þeir hafi og svo þær upplýsingar sem koma fram í lögregluskýrslum sé hægt að álykta að málið sé tilbúningur þegar það fer frá Keflavík til sakadóms Reykjavíkur. Allt í einu sé hvarf hans hnýtt saman við hvarf Guðmundar Einarssonar og úr verða Geirfinns- og Guðmundarmál.

Hann segir þannig lögregluna í Reykjavík ekki efast um neitt sem kemur fram í lögregluskýrslunum í Keflavík.

Upphafið að réttarglæpnum

„Það er byrjun á réttarglæp sem endar með því að sex manns eru dæmd sek fyrir aðild að morði sem þau höfðu ekkert með að gera,“ segir Jón Ármann.

Þau hafi verið sýknuð af þessu en glæpurinn sé enn óleystur vegna þess að lögreglan hafi engan vilja til að rannsaka sjálfa sig eða hvað raunverulega gerðist þetta nóvemberkvöld.

Hann segir greinilegt að skýrslur lögreglunnar séu tilbúningur. Það séu nærri engar líkur á því að unglingar hafi tvívegis getað framið nánast sama glæpinn. Skýrslurnar um hvarf Geirfinns og Guðmundar séu nánast eins og það geti ekki staðist að þeir hafi báðir verið drepnir af unglingum vegna ósættis og svo grafnir í hraun.

Hann segist velta því fyrir sér hvar þessi skáldskapur hafi orðið til og af hverju hann hafi orðið til.

„Það er vegna þess að rannsakendur í Keflavíkurlögreglunni og hjá sýslumannsembættinu í Keflavík höfðu hagsmuni, persónulega, að því að afvegaleiðamálið og búa til eitthvað annað en raunverulega gerðist.“

Öll púslin komin á sinn stað

Hann segir að í þessum 13. kafla sem eigi eftir að afhenda dómsmálaráðuneytinu sé búið að raða öllum púslunum í málinu saman og þau passi. Geirfinnur hafi verið myrtur af manni sem hann þekkti sem hafi verið að reyna að koma í veg fyrir að hann réðist að elskhuga konunnar hans. Þau hafi verið saman uppi í rúmi en konan hans haldið að Geirfinnur væri í bíó. Jón Ármann segir nágrannadreng Geirfinns hafa orðið vitni að þessu og hringt í lögregluna en einhver hjá lögreglunni hafi haft hag af því að koma í veg fyrir að sannleikurinn yrði leiddur í ljós.

Jón Ármann segist vera að bíða eftir nokkrum skjölum til að hnýta þetta saman. Hann sé með vitni og flottar vísbendingar og skjalfest viðbrögð.

„Þetta þarf lögreglan að skoða ef það er vilji til.“

Jón Ármann segir dómsmálaráðherra fá gögnin og skýrsluna í næstu viku. Um sé að ræða tugi þúsunda skjala sem fylgja en það sé verið að velja úr það mikilvægasta. Jón Ármann segist hafa rannsakað þetta mál í um tuttugu ár. Hann hafi verið plataður af lögreglunni, eins og alþjóð, og hafi til dæmis aldrei fengið tækifæri til að biðja Sævar Ciesielski afsökunar á því að hafa haldið að hann væri glæpamaður.


Tengdar fréttir

Ný gögn í Geir­finnsmáli eigi að fara til lög­reglu á Suður­nesjum

Jón H.B. Snorrason saksóknari hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir best að byrja hjá lögreglu sé fólk með vitnisburð eða gögn sem geti varpað nýju ljósi á rannsókn lögreglu í einhverju máli. Útgefandi bókar um hvarf Geirfinns Einarssonar geti snúið sér til lögreglunnar á Suðurnesjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×