Sport

Tekur á líkama og sál að gera þetta

Aron Guðmundsson skrifar
Björgvin Karl Guðmundsson, atvinnumaður í CrossFit
Björgvin Karl Guðmundsson, atvinnumaður í CrossFit Vísir/Einar

Ís­lenski Cross­Fit kappinn Björg­vin Karl Guð­munds­son samdi á dögunum við nýja at­vinnu­manna­deild í Cross­Fit, World Fit­ness Project, líkt og fleiri af bestu Cross­Fit kepp­endum heims en það er fyrr­verandi at­vinnu­maðurinn og keppi­nautur Björg­vins, Will Moor­ad sem stendur að baki deildinni sem er að brjóta blað í sögu íþróttarinnar.

„Hann er til­tölu­lega nýhættur að keppa á þessu gæða­stigi og er búinn að vinna í þessu síðastliðin þrjú ár og er kominn svona langt með þetta dæmi,“ segir Björg­vin Karl um hina nýju at­vinnu­manna­deild og stofnanda hennar. „Þetta virkar í rauninni sem mótaröð. Það eru samningar gerðir við topp tuttugu ein­stak­lingana í heiminum og svo geta tíu Cross­Fit kepp­endur til viðbótar unnið sér inn keppnis­rétt á mótaröðinni. Þetta verða því þrjátíu manns sem þarna keppna.

Þeir líta að mig minnir í kringum fjögur ár aftur í tímann. Hvernig ég hef verið að standa mig og með því að skoða það sá hann for­sendur fyrir því að bjóða mér í þessa deild. Það sama gildir um alla aðra í þessari deild. Hann velur í rauninni topp tuttugu út frá því hvernig þú hefur verið að standa þig undan­farin ár.“

Hefur ekki bara einn séns eins og á heimsleikunum

Íþrótta­fólkið er skuld­bundið til að keppa á þremur mótum yfir árið.

„Það er eitt mót í Indiana, svo í Phoenix og loka­mótið fer síðan fram í Kaup­manna­höfn. Það er farið út um allt og virkar í raun þannig að þú safnar inn stigum á hverju móti fyrir sig. Það er dálítið frábrugðið því hvernig heims­leikarnir virka. Þar þarftu að vera til­búinn ákveðna helgi, hefur bara einn séns og það getur verið allur gangur á því hvernig gengur á leikunum. Þarna ertu með fleiri en einn séns, safnar stigum og við getum í raun hugsað þetta eins og keppni í ensku úr­vals­deildinni í fót­bolta. Í lokin er sá sem er með felst stigin krýndur meistari.“

Jákvæðar fréttir

Með deildinni er verið að stíga skref sem hefur ekki þekkst innan Cross­fit þar sem íþrótta­fólkið verður með fastar tekjur yfir tíma­bilið.

„Þetta er ekki life changing peningur en alveg klár­lega breytir þetta miklu. Með þessu ertu ekki að taka eins mikla áhættu lengur eins og þetta er fyrir nánast alla. Það eru mjög fáir sem hafa verið að lifa á þessu sem at­vinnu­menn auðveld­lega. Þetta í rauninni gefur okkur meiri fót­festu, það er þægi­legra fyrir okkur að vita að þó svo að fyrir ein­hverja gangi ekki vel þá ertu ekki bara að tapa peningum enda­laust allt tíma­bilið og þarft bara að byrja á núll­punkti á því næsta. Þetta er klár­lega þægi­legri til­hugsun. Svo náttúru­lega geturðu unnið þér inn meiri pening ef þú stendur þig vel, ef þú endar í einu af þessum toppsætum færðu í rauninni meiri pening fyrir vikið. Þetta er í fyrsta skipti sem við erum að ganga svona langt. Það hljóta náttúru­lega bara að vera jákvæðar fréttir.“

Tekjur Björg­vins undan­farin ár hafa til að mynda komið í gegnum verð­launafé og samninga við styrktaraðila.

„Þetta gerir fólki kleift að þurfa ekki lengur að vera vinna með. Margir hverjir, örugg­lega lang­flestir, eru með þetta þannig að þeir eru þjálfarar í Cross­fit stöðvum sam­hliða sínum ferli og fá þannig þessar grunn­tekjur auk þess að vera með samning við styrktaraðila og annað. Þannig lætur fólk þetta yfir­leitt ganga upp. En það eru ekkert rosa­lega margir sem fá tækifæri til þess að vera at­vinnu­menn að fullu í þessari íþrótt. Maður hefur alltaf verið að bíða eftir því að þetta skref yrði tekið. Það eru náttúru­lega bara frábærar fréttir að það sé að gerast núna.“

Getur ekki verið í klikkuðu formi allt árið um kring

Enn fremur úti­lokar þátt­taka í þessari nýju at­vinnu­manna­deild ekki þátt­töku á heims­leikunum sjálfum, krúnu­djásni Cross­Fit heimsins. En fram­u er hins vegar mikið til­rauna ár hjá Björg­vini.

„Segjum sem svo að ég komist alla leið inn á heims­leikana og keppi á sama tíma í þessari at­vinnu­manna­deild. Þá verður þetta klár­lega miklu meira álag heldur en það hefur verið. Ég er í rauninni með þessu að bæta þremur harð­kjarna keppnum inn í tíma­bilið hjá mér. En að geta gert bæði er alveg geggjað. Þetta verður smá til­raunatíma­bil. Við verðum að fá að klóra okkur í gegnum þetta fyrsta ár, sjá hvort að þetta virki­lega henti manni. Hvort það sé raun­hæft að geta keppt svona mikið. Maður þarf svolítið að vega og meta hvenær maður vill vera til­búinn. Viltu vera til­búinn fyrir öll þrjú mótin á vegum World Fit­ness Project eða ætlarðu að reyna vera bara góður á heims­leikunum? Þú getur ekki verið í ein­hverju klikkuðu formi allt árið um kring. Það bara virkar ekki þannig. Maður þarf að vera sniðugur, með gott fólk í kringum sig og klár í að þetta verði frekar strembið ár. En geggjað að geta gert bæði í einu. Klár­lega.“

Björgvin Karl Guðmundsson hefur verið lengi að í CrossFit heiminum og er hvergi nærri hættur.Mynd/Instagram/bk_gudmundsson

Björg­vin er þaul­reyndur keppnis­maður í Cross­Fit og á að baki ellefu heims­leika þar sem hann hefur best náð þriðja sæti. En hversu lengi sér hann sig halda áfram?

„Þetta er góð spurning. Ég gæti alveg sagt við þig tvö ár. Það sem er að gerast er að það eru rosa­lega margir orðnir ótrú­lega góðir. Þetta tekur gífur­legan tíma frá manni. Við erum að tala um fimm til sex tíma á dag á æfingum, einn dagur í viku sem er hvíldar­dagur. Það tekur bara á líkama og sál að gera þetta, í svona langan tíma líka. En þetta er samt enn mjög gaman. Ég hef alltaf sagt mér það og lofaði mér því eigin­lega að um leið og mér finnst þetta ekki gaman lengur ætla ég að hætta þessu. Sá dagur er ekki kominn enn þá.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×