Enski boltinn

Sir Alex og United goð­sagnir í jarðar­för: „Hún hefði kunnað að meta það“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ruben Amorim mætir hér í jarðarför Kath Phipps ásamt öllu Manchester United liðinu.
Ruben Amorim mætir hér í jarðarför Kath Phipps ásamt öllu Manchester United liðinu. Getty/Manchester United

Manchester United kvaddi í dag Kath Phipps sem starfaði fyrir félagið í 55 ár. Lengst af var það hún sem tók á móti öllum sem komu í höfuðstöðvar félagsins og allir hafa góða sögu að segja af þessari vingjarnlegu konu.

Það var því mjög fjölmennt í jarðarför hennar í dag en þar var Sir Alex Ferguson mættur ásamt goðsögnum eins og David Beckham, Peter Schmeichel, Paul Scholes, Roy Keane og Bryan Robson.

Ruben Amorim, þjálfari félagsins, mætti líka í jarðarförina ásamt öllu aðalliðinu. Bruno Fernandes og Jonny Evans fóru fyrir liðinu ásamt Amorim.

Phipps lést í desember, 85 ára gömul. Hún var mikill stuðningsmaður félagsins frá barnæsku en tók við sem starfsmaður á skiptiborðinu árið 1968, stuttu eftir að félagið vann Evrópukeppni meistaraliða í fyrsta sinn. Hún starfaði hjá félaginu allt til ársins 2023.

Phipps var frægust fyrir starf sitt í móttöku félagsins þar sem hún tók fagnandi á móti öllum sem þangað komu.

Jonny Evans var meðal þeirra sem héldu ræðu: „Hún var sú besta á góðum degi og sú besta á slæmum degi,“ sagði Evans.

„Það fór enginn framhjá Kath án þess að fá lítið faðmlag. Þegar hún kom aftur til vinnu í sumar þá skutlaði ég henni heim. Það var eins og ég væri að keyra meðlim í konungsfjölskyldunni,“ sagði Evans.

Sir Alex Ferguson sem var knattspyrnustjóri félagsins í 26 ára hélt líka tölu.

Kath hefði verið ánægð með það

Ferguson var ánægður með að liðið hafi náð í úrslit á móti Liverpool í gær. „Kath hefði verið ánægð með það,“ sagði Alex Ferguson.

„Þegar ég heimsótti hana undir það síðasta þá sá ég að hún var ánægð og sátt. Hún sagðist vera að drekka Coke og Bacardi. Ég spurði hana hvort læknirinn væri sáttur við slíkt þá sagðist hún ekki hafa spurt hann,“ sagði Ferguson.

„Það er óvanalegt að finna einhvern sem var svo umhugað um hjálpa öllum öðrum. Allir sem eru hingað komnir i dag vilja heiðra mjög sérstaka persónu,“ sagði Ferguson.

Hún var frábær manneskja

Hann var líka gripinn í viðtal fyrir utan kirkjuna.

„55 ár. Ég var þarna í 26 ár og hélt að það væri alveg ótrúlegt. Hún var frábær manneskja og ég svo ánægður með að allir leikmennirnir komu. Hún hefði kunnað að meta það,“ sagði Ferguson í viðtali við BBC eftir athöfnina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×