Innlent

Nokkura bíla á­rekstur á Vatnaleið

Samúel Karl Ólason skrifar
Aðstæður eru sagðar hafa verið erfiðar á Vatnaleiðinni í dag.
Aðstæður eru sagðar hafa verið erfiðar á Vatnaleiðinni í dag. Landsbjörg

Björgunarsveitarmenn frá Berserkjum í Stykkishólmi og Klakki í Grundarfirði aðstoðuðu í dag fjölda fólks eftir árekstur nokkurra bíla á Vatnaleið á Snæfellsnesi. Vel mun hafa gengið að aðstoða fólk á heiðinni við erfiðar aðstæður og ófærð.

Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að fjöldi fólks hafi fengið aðstoð. Fólk var tekið úr á annan tug bíla og flutt niður af Vatnaleið, auk þess sem ökumenn tveggja vörubíla voru aðstoðaðir við að komast niður.

Aðgerðum lauk umklukkan átta í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×