Sport

Snákurinn beit frá sér og sendi meistarann heim

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Peter Wright sendi heimsmeistarann heim og er kominn í átta manna úrslit.
Peter Wright sendi heimsmeistarann heim og er kominn í átta manna úrslit. James Fearn/Getty Images

Luke Humphries, ríkjandi heimsmeistari í pílukasti, er úr leik á HM í pílu eftir 4-1 tap gegn Peter „Snakebite“ Wright.

32-manna úrslitin kláruðust í fyrsta leik kvöldsins þar Englendingurinn Ricky Evans og Walesverjinn Robert Owen áttust við. Evans vann tvö af fyrstu þremur settunum, en Owen reyndist sterkari í heildina og vann nokkuð öruggan sigur, 4-2.

Þá varð Gerwyn Price, heimsmeistarinn frá árinu 2021, fyrsti maðurinn til að tryggja sér sæti í 8-manna úrslitum er hann vann landa sinn frá Wales, Jonny Clayton, 4-2.

Hvorki Price né Clayton áttu sinn besta leik, en Price kláraði sitt og mætir Kevin Doets eða Chris Dobey í fjórðungsúrslitum.

Að lokum áttust Peter Wright, heimsmeistarinn frá 2020 og 2022, og Luke Humphries, ríkjandi heimsmeistari, við í viðureign sem hafði verið beðið eftir með nokkurri eftirvæntingu.

Wright og Humphries höfðu verið að munnhöggvast fyrir viðureignina og sagði sá síðarnefndi meðal annars að hann væri aðeins einum heimsmeistaratitli frá því að jafna allt það sem Wright hefði gert á ferlinum.

Peter „Snakebite“ Wright mætti hins vegar með hnífana á lofti í viðureign þeirra félaga í kvöld og virtist einfaldlega ekki geta klikkað á útskoti. 

Wright og Humphries unnu sitt hvort settið í upphafi leiks áður en sá fyrrnefndi vann næstu tvö og kom sér í 3-1 þar sem hann var búinn að hitta 11 af 16 útskotum sínum.

Heimsmeistarinn Humphries var því kominn með bakið upp við vegg. Wright hélt hins vegar bara uppteknum hætti, kláraði fyrsta legginn og svo annan legginn gegn kasti áður en hann kláraði settið 3-0 og sendi heimsmeistarann heim, með skottið á milli lappanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×