Erlent

Jimmy Carter látinn

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Carter við útför eiginkonu sinnar, Rosalynn Carter, sem lést í fyrra.
Carter við útför eiginkonu sinnar, Rosalynn Carter, sem lést í fyrra. EPA

Jimmy Carter fyrrverandi forseti Bandaríkjanna er látinn. Hann varð hundrað ára gamall. 

Carter var 39. forseti Bandaríkjanna og sat eitt kjörtímabil í embætti frá 1977 til 1981. Hann var langlífasti forseti Bandaríkjanna. 

Í frétt CBS segir að samtökin Carter Center hafi greint frá andláti forsetans fyrrverandi. Upplýsingar um dánarorsök liggja ekki fyrir en Carter hafði verið á líknandi meðferð síðan í febrúar í fyrra. 

Það voru engin sérstök veikindi sem leiddu til þess að meðferðin hófst, en Carter hafði þó verið tíður gestur á sjúkrahúsum og var hann sagður þreyttur á því.

Carter fagnaði hundrað ára afmæli þann 1. október síðastliðinn. Blaðamaður Vísis gerði ævi hans og störfum ítarleg skil en greinina má lesa hér að neðan. 

Carter fæddist árið 1924 í bænum Plains í Georgíu í Bandaríkjunum. Hann sótti háskóla í Georgíu og síðar háskóla sjóhers Bandaríkjanna en þaðan útskrifaðist hann árið 1946. Sama ár giftust hann og Rosalynn en hún var einnig frá Plains í Georgíu. Rosalynn lést þann 19. nóvember 2023.

Carter sneri sér að stjórnmálum árið 1962 og varð ríkisstjóri Georgíu fyrir hönd Demókrata átta árum síðar. Þaðan færði hann sig yfir í Hvíta húsið árið 1977, eftir að hafa sigrað Repúblikanann Gerald Ford, þáverandi forseta Bandaríkjanna, í forsetakosningunum. Fjórum árum síðar laut hann í lægra haldi fyrir Ronald Reagan, fertugasta forseta Bandaríkjanna. 

Í forsetatíð sinni afrekaði Carter nokkuð í starfi forseta. Hann stækkaði til að mynda mjög þjóðgarðakerfi Bandaríkjanna og stofnaði menntamálaráðuneytið, auk þess sem hann stækkaði umfang velferðarkerfis Bandaríkjanna.

Eftir að Carter yfirgaf Hvíta húsið sneri hann sér að öðrum störfum. Hann og Rosalynn stofnuðu hjálparsamtökin Carter center árið 1982, en samtökin hafa leitast við að stilla til friðar á átakasvæðum í heiminum og staðið vörð um lýðræði og mannréttindi í heiminum. Þar að auki hefur stofnunin barist gegn dreifingu farsótta í heiminum. Þá skrifaði Carter 32 bækur í gegn um ævina. 

Fréttin hefur verið uppfærð. 


Tengdar fréttir

Rosalynn Carter er látin

Rosalynn Carter, fyrrverandi forsetafrú Bandaríkjanna, er látin 96 ára að aldri. 

Jimmy Carter liggur banaleguna

Jimmy Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, er í líknandi meðferð. Hann hefur nýverið varið tíma á sjúkrahúsi en ákvað í dag að verja þeim tíma sem hann á eftir á heimili sínu með fjölskyldu sinni.

Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni

Jimmy Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, heldur í dag upp á hundrað ára afmæli sitt en hann hefur verið í líknandi meðferð í tæplega tvö ár. Forsetinn fyrrverandi hefur fengið kveðjur víðsvegar að úr heiminum.

Myndir: Rosalynn Carter kvödd af eiginmanninum til 77 ára

Rosalynn Carter, rithöfundur, aktívisti og fyrrverandi forsetafrú var kvödd í gær. Jarðarför hennar fór fram í Maranatha kirkju í heimabæ hennar, smábænum Plains skammt frá Atlanta borg í Georgíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×