Menning

Arnaldur tók sér frí frá glæpum en ekki toppnum

Jakob Bjarnar skrifar
Arnaldur Indriðason er söluhæstur þó hann hafi gefið glæpasögunni frí þetta árið. Hann er nú tilnefndur til hinna Íslensku bókmenntaverðlauna og verður spennandi að sjá, í næsta mánuði, hvernig fer með þau.
Arnaldur Indriðason er söluhæstur þó hann hafi gefið glæpasögunni frí þetta árið. Hann er nú tilnefndur til hinna Íslensku bókmenntaverðlauna og verður spennandi að sjá, í næsta mánuði, hvernig fer með þau. vísir/vilhelm

Þó Arnaldur Indriðason hafi gefið glæpasögunni frí þessi jólin, og sendi frá sér bók um Jónas Hallgrímsson, þá er hann öruggur á toppi bóksölunnar. Þjóðin elskar Arnald.

Fyrir þremur árum síðan kom út bókin Sigurverkið, fyrsta skáldverk Arnaldar Indriðasonar sem ekki flokkaðist sem glæpasaga. Þetta stökk milli bókmenntaflokka dró ekki mikið úr áhuga lesenda á Arnaldi. Þetta segir Bryndís Loftsdóttir framkvæmdastjóri Fíbút. Hún er að taka blaðamann Vísis með sér í stutta sögustund. En Vísir gefur út bóksölulista í samstarfi við Félag bókaútgefenda og nú er komið að þeim síðasta fyrir þessi jól.

„Sigurverkið var tilnefnt til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og endaði sem önnur mest selda bók ársins 2021, næst á eftir Lok, lok og læs eftir Yrsu Sigurðardóttur. Í ár bætir Arnaldur um betur, skáldverkið Ferðalok er mest selda bók ársins til þessa, hefur setið í fyrsta sæti Bóksölulistans frá því hún kom út, að undanskildum einum lista þegar Ævisaga Geirs H. Haarde hafði betur.“

Ferðalok hefur einnig verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í ár. Ekki er hægt annað en að óska Arnaldi til hamingju með árangurinn, hann er einfaldlega sá höfundur sem haldið hefur þjóðinni allra manna best að lestri á liðnum áratugum, ótvíræður konungur jólabókaflóðsins.

Skáldverkin safna vopnum sínum

Bryndís er ánægð með vaxandi veg skáldverkanna en af tíu mest seldu bókum síðustu viku eru sjö skáldverk, þar af fjórar glæpasögur og þrjú bókmenntaverk. Að sama skapa má nefna að aðeins ein barnabók er á meðal tíu mest seldu bóka vikunnar, Orri óstöðvandi – Heimsfrægur á Íslandi

Enginn á Íslandi veit meira um bóksölu en Bryndís Loftsdóttir, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda, en áður en hún tók við starfi hjá útgefendum starfaði hún sem verslunarstjóri í bókabúð Eymundsson. vísir/vilhelm

„Orri situr nú í sjöunda sæti listans en sú var tíðin að barnabækur röðuðu sér ofar á listann í aðdraganda jóla og áttu oftast tvo til þrjá af tíu mest seldu titlunum. Hvort þetta sé afleiðing aukinnar sölu skáldverka, merki að sala barnabóka dreifist á fleiri titla eða að sala þeirra sé að dragast saman verður að koma í ljós við ársuppgjörið í janúar,“ segir Bryndís.

Hástökkvari vikunnar er svo Gólem eftir Steinar Braga. Hún kemur ný inn á skáldverkalistann og fer beint upp í 11. sæti. Moldin heit eftir Birgittu Björg Guðmundsdóttur og Synir himnasmiðsins eftir Guðmund Andra Thorsson koma einnig nýjar inn á skáldverkalistann.

Íþróttahetjurnar taka hástökk á bóksölulistum

„Markmaður þjóðarinnar, Hannes Þór Halldórsson tekur einnig risastökk upp listann, hækkar sig um 10 sæti og situr nú í áttunda sæti fræðibókalistans. Ný á lista þar er ráðgátubókin Morðleikir, 100 auðveldar til ómögulegar gátur til að leysa með rökhugsun, leikni og ályktunarhæfni í þýðingu Ingunnar Snædal.“

Sveindís Jane – saga af stelpu í landsliði tekur sama stökkið og Hannes, fer einnig upp um 10 sæti og situr í áttunda sæti barnabókalistans. Nýjar bækur þar á lista eru Disney Jólasyrpa 2024, Dótarímur Þórarins Eldjárns og Fótboltaspurningar 2024 í samantekt Guðjóns Inga Eiríkssonar.

„Við hvetjum landsmenn til þess að halda í hefðina og gefa bækur til jólagjafa. Það mætir enginn ólesinn í jólaboðinn í ár,“ segir Bryndís.


Bóksölulistinn 16.-22. desember

  1. Ferðalok - Arnaldur Indriðason
  2. Ég læt sem ég sofi - Yrsa Sigurðardóttir
  3. Í skugga trjánna - Guðrún Eva Mínervudóttir
  4. Dauðinn einn var vitni - Stefán Máni
  5. Hulda - Ragnar Jónasson
  6. Útkall í ofsabrimi - Óttar Sveinsson
  7. Orri óstöðvandi - Heimsfrægur á Íslandi Bjarni Fritzson, myndh. Þorvaldur Sævar Gunnarsson
  8. Kvöldið sem hún hvarf - Eva Björg Ægisdóttir
  9. Ævisaga - Geir H. Haarde
  10. Sextíu kíló af sunnudögum - Hallgrímur Helgason
  11. Himintungl yfir heimsins ystu brún - Jón Kalman Stefánsson
  12. Pabbabrandarar 3 - Þorkell Guðmundsson
  13. Lára fer á fótboltamót - Birgitta Haukdal
  14. Stella segir bless - Gunnar Helgason
  15. Atli eignast gæludýr - Birgitta Haukdal
  16. Börn í Reykjavík - Guðjón Friðriksson
  17. Verstu skrímsli í heimi - David Walliams, þýð. Guðni Kolbeinsson
  18. Ég færi þér fjöll - Kristín Marja Baldursdóttir
  19. Prumpulíus brelludreki - Kai Lüftner, myndh. Wiebke Rauers
  20. Kúkur, piss og prump - Vísindalæsi 5 - Sævar Helgi Bragason, myndir Elías Rúni

Skáldverk

  1. Ferðalok - Arnaldur Indriðason
  2. Ég læt sem ég sofi - Yrsa Sigurðardóttir
  3. Í skugga trjánna - Guðrún Eva Mínervudóttir
  4. Dauðinn einn var vitni - Stefán Máni
  5. Hulda - Ragnar Jónasson
  6. Kvöldið sem hún hvarf - Eva Björg Ægisdóttir
  7. Sextíu kíló af sunnudögum - Hallgrímur Helgason
  8. Himintungl yfir heimsins ystu brún - Jón Kalman Stefánsson
  9. Ég færi þér fjöll - Kristín Marja Baldursdóttir
  10. Þegar sannleikurinn sefur - Nanna Rögnvaldardóttir
  11. Gólem - Steinar Bragi
  12. Jólabústaðurinn - Sarah Morgan,þýð. Birgitta Hassell og Marta Magnadóttir
  13. Rétt áðan - Illugi Jökulsson
  14. Kul - Sunna Dís Másdóttir
  15. Hittu mig í Hellisgerði - Ása Marin
  16. Speglahúsið - Benný Sif Ísleifsdóttir
  17. Moldin heit - Birgitta Björg Guðmarsdóttir
  18. Hildur - Satu Rämö, þýð. Erla Elíasdóttir Völudóttir
  19. Synir himnasmiðs - Guðmundur Andri Thorsson
  20. Hjartabein - Colleen Hoover, þýð. Sunna Dís Másdóttir

Fræðbækur og rit almenns efnis

  1. Útkall í ofsabrimi - Óttar Sveinsson
  2. Ævisaga - Geir H. Haarde
  3. Pabbabrandarar 3 - Þorkell Guðmundsson
  4. Börn í Reykjavík - Guðjón Friðriksson
  5. Duna - Saga kvikmyndagerðarkonu - Kristín Svava Tómasdóttir og Guðrún Elsa Bragadóttir
  6. Stóra brauðtertubókin - Ýmsir höfundar
  7. Öxin, Agnes og Friðrik - Síðasta aftakan á Íslandi - Magnús Ólafsson
  8. Hannes - Handritið mitt - Magnús Örn Helgason
  9. Churchill - Stjórnvitringurinn framsýni - James C. Humes, þýð. Magnús Þór Hafsteinsson
  10. Fangar Breta - Sindri Freysson
  11. Ullaræði: Villahullu 2 - Heli Nikula, þýð. Guðrún Hannele Henttinen
  12. Frasabókin – ný og endurbætt íslensk snjallyrði - Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson
  13. Til taks - Þyrlusaga Landhelgisgæslu Íslands Benóný Ásgrímsson, Júlíus Ó. Einarsson og Páll Halldórsson
  14. Fólk og flakk - Sagnakvöld af baksviði stjórnmálanna - Steingrímur J. Sigfússon
  15. Í veiði með Árna Bald - Árni Baldursson
  16. Þjóðin og valdið - Fjölmiðlalögin og Icesave - Ólafur Ragnar Grímsson
  17. Ég átti að heita Bjólfur - Æskuminningar - Jón Ársæll Þórðarson
  18. Morðleikir 100 auðveldar til ómögulegar gátur - G.T. Karper, þýð. Ingunn Snædal
  19. Fótboltaspurningar Illuga Jökulssonar - Illugi Jökulsson
  20. Ég skal hjálpa þér - Saga Auriar - Herdís Magnea Hübner

Barna- og ungmennabækur

  1. Orri óstöðvandi - Heimsfrægur á Íslandi - Bjarni Fritzson, myndh. Þorvaldur Sævar Gunnarsson
  2. Lára fer á fótboltamót - Birgitta Haukdal
  3. Stella segir bless - Gunnar Helgason
  4. Atli eignast gæludýr - Birgitta Haukdal
  5. Verstu skrímsli í heimi - David Walliams, þýð. Guðni Kolbeinsson
  6. Prumpulíus brelludreki - Kai Lüftner, myndh. Wiebke Rauers
  7. Kúkur, piss og prump - Vísindalæsi 5 - Sævar Helgi Bragason, myndir Elías Rúni
  8. Sveindís Jane: Saga af stelpu í landsliði - Sveindís Jane Jónsdóttir og Sæmundur Norðfjörð
  9. Fíasól í logandi vandræðum - Kristín Helga Gunnarsdóttir, myndir Halldór Baldursson
  10. Kærókeppnin - Embla Bachmann, myndir Blær Guðmundsdóttir
  11. Jólasyrpa 2024 - Walt Disney
  12. Bakað með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal og Sylvía Haukdal
  13. Bluey - 5 mínútna sögur - Joe Brumm, þýð. Andri Karel Ásgeirsson
  14. Dagbók Kidda klaufa 18: Ekkert mál - Jeff Kinney, þýð. Helgi Jónsson
  15. Þegar Trölli stal jólunum - Dr. Seuss, þýð. Þorsteinn Valdimarsson
  16. Risaeðlugengið 6: Leyndarmálið - Lars Mæhle, myndh. Lars Rudebjer
  17. Fóboltastjörnur - Ronaldo er frábær! - Simon Mugford, þýð. Guðni Kolbeinsson
  18. Dótarímur - Þórarinn Eldjárn
  19. Fótboltaspurningar 2024 - Guðjón Ingi Eiríksson
  20. Vörubílar og vinnuvélar - Örn Sigurðsson

Uppsafnað frá áramótum

  1. Ferðalok - Arnaldur Indriðason
  2. Ég læt sem ég sofi - Yrsa Sigurðardóttir
  3. Orri óstöðvandi - Heimsfrægur á Íslandi - Bjarni Fritzson, myndir Þorvaldur Sævar Gunnarsson
  4. Útkall í ofsabrimi - Óttar Sveinsson
  5. Dauðinn einn var vitni - Stefán Máni
  6. Ævisaga - Geir H. Haarde
  7. Hulda - Ragnar Jónasson
  8. Í skugga trjánna - Guðrún Eva Mínervudóttir
  9. Kvöldið sem hún hvarf - Eva Björg Ægisdóttir
  10. Lára fer á fótboltamót - Birgitta Haukdal
  11. Sextíu kíló af sunnudögum - Hallgrímur Helgason
  12. Atli eignast gæludýr - Birgitta Haukdal
  13. Himintungl yfir heimsins ystu brún - Jón Kalman Stefánsson
  14. Stella segir bless - Gunnar Helgason
  15. Prumpulíus brelludreki - Kai Lüftner, myndir Wiebke Rauers
  16. Fíasól í logandi vandræðum - Kristín Helga Gunnarsdóttir,myndir Halldór Baldursson
  17. Kúkur, piss og prump - Vísindalæsi 5 - Sævar Helgi Bragason, myndir Elías Rúni
  18. Hildur - Satu Rämö, þýð. Erla Elíasdóttir Völudóttir
  19. Pabbabrandarar 3 - Þorkell Guðmundsson
  20. Verstu skrímsli í heimi - David Walliams, þýð. Guðni Kolbeinsson

Tengdar fréttir

Yrsa reykspólar fram úr Geir

Vísir birtir annan bóksölulistann á þessari vertíð. Nú eru línur teknar að skýrast þó enn séu æsispennandi tímar framundan í bóksölunni.

Geir og Arnaldur í fang­brögðum á toppnum

Vísir birtir, í samstarfi við Félag íslenskra bókaútgefenda, fyrsta bóksölulista ársins. Hann endurspeglar að þessu sinni sölu íslenskra bóka í nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.