Innlent

Vill að stjórn FH fari frá

Jón Þór Stefánsson skrifar
Sigurður P. Sigmundsson er formaður frjálsíþróttadeildar FH.
Sigurður P. Sigmundsson er formaður frjálsíþróttadeildar FH. Vísir/Vilhelm

Sigurður P. Sigmundsson, formaður frjálsíþróttadeildar FH, segir að stjórn félagsins verði að fara frá nú í kjölfar þess greint hefur verið frá skýrslu Deloitte sem var unnin fyrir Hafnafjarðarbæ. Þar kom fram að fjörutíu prósent af byggingarkostnaði við knatthúsið Skessuna hafi farið í greiðslur til formanns félagsins og fyrirtækja sem bróðir hans er í forsvari fyrir.

„Þetta er bara skelfilegt að horfa upp á þetta og ég segi bara stjórnin þarf að fara frá,“ sagði Sigurður í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Þar rak Sigurður málið stuttlega. Nú sé komin upp sú staða að ef bærinn kaupi ekki knatthúsið verði félagið gjaldþrota.

„Það er náttúrulega stóralvarlegt mál. Félagið er að verða hundrað ára eftir fimm ár, fornfrægt félag.“

Bærinn hafi því beðið um umrædda skýrslu frá Deloitte. 

„Þá kemur náttúrulega í ljós að það er búið að hlaða inn á Skessuna byggingakostnaði sem stenst ekkert, eins og 120 til 130 milljónir sem hafa runnið til knattspyrnudeildar FH sem byggingakostnaður. Auðvitað gera menn athugasemdir við þetta.“

Að sögn Sigurðar hefur komið fram að það skorti mikið á gegnsæi í bókhaldi félagsins

„Það segir sig sjálft að það er einhver veruleg óreiða í bókhaldinu,“ segir Sigurður sem segir að sér finnist hvað alvarlegast að þarna hafi komið fram hlutir sem ekki komu fram í ársreikningum. Hann segir að þess vegna þurfi að rannsaka málið betur.

Skýrslan nái fimm ár aftur í tímann, en að mati Sigurðar er ástæða til að skoða tuttugu ár aftur í tímann. Bræðurnir Jón Rúnar og Viðar Halldórssynir hafa verið í lykilhlutverki hjá FH yfir þennan tíma og komið að byggingu tveggja knatthúsa til viðbótar á svæðinu. 

„Það sem við viljum í frjálsíþróttadeildinni er að það sé allt uppi á borðum og stjórnunarhættir í Kaplakrika og rekstrarfyrirkomulagið sé gagnsætt, og eins og lög og reglur segja til um.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×