Innlent

Búkmyndavélar taka upp þegar rafbyssum er beitt

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Guðmundur Ásgeirsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir notkun rafvarnarvopna hingað til mun minni á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum.
Guðmundur Ásgeirsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir notkun rafvarnarvopna hingað til mun minni á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum. Vísir/Einar

Rafbyssu var beitt í fyrsta sinn hér á landi í gær þegar lögreglan var kölluð til vegna vopnaðs manns. Öll atburðarásin var tekin upp á búkmyndavélar lögreglumanna á svæðinu og mun sérstakur starfshópur á vegum dómsmálaráðuneytisins fara yfir atvikið.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit ríkislögreglustjóra voru með mikinn viðbúnað við Miklubraut í Reykjavík í gær vegna manns sem var vopnaður hnífi. Lögreglan notaði meðal annars rafbyssu til að yfirbuga manninn en það er í fyrsta sinn sem vopninu er beitt frá því að lögreglan tók rafbyssur í notkun í september á þessu ári. Vopnin hafa þó verið dregin úr slíðri áður eða ræst eða alls tuttugu og níu sinnum í sautján málum.

„Ástæðan fyrir því að það er búið að draga úr slíðri þetta oft en í færri málum þá eru kannski tvö vopn á svæðinu. Þá eru bæði dregin upp. Þau eru dregin upp eða ræst. Stundum dugir bara að draga þau upp. Í öðrum tilfellum hefur verið ræst en þá er viðkomandi gefin viðvörun með hljóði og ljósmerki og hingað til, þangað til í gær, hefur það dugað til þess að fá fólk til þess að hlýða skipunum lögreglu,“ segir Guðmundur Ásgeirsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Mennta- og starfsþróunarsetri lögreglu.

Í verklagi lögreglu er það metið í hverju tilfelli fyrir sig hvort læknir skoði þá sem skotið er á með rafbyssu en lögreglan gefur ekki upp hvort það var gert í gær. Guðmundur segir lögreglumenn meðvitaða um að slys geti orðið þegar vopnin eru notuð.

„Slysin sem verða fyrst og fremst þegar þetta vopn er notað er falláverkar þegar fólk fær rafstuð í sig þá stirðnar það upp og fellur og við þurfum að hafa það í huga hvar fólk er statt þegar að við notum þessi tæki.“

Lögreglan á hundrað og tuttugu rafbyssur sem lögreglumenn um allt land hafa aðgang að.Vísir/Einar

Eftirlitið sé gott með notkun vopnanna og sérstakur starfshópur á vegum dómsmálaráðuneytisins fari yfir öll atvik þar sem byssurnar eru teknar upp eða notaðar. Þannig verði atvikið í gær skoðað af honum. Þá séu allir lögreglumenn sem bera rafvarnarvopnin með á sér með búkmyndavélar sem séu tengdar slíðrinu og upptökurnar úr þeim eru nýttar þegar atvikin eru skoðuð.

„Um leið og vopnið er tekið úr slíðri þá kviknar sjálfkrafa á öllum myndavélum í ákveðnum radíus í kringum vopnið. Allir sem eru að bera þessar myndavéla sem tengjast vélunum. Þá fer upptaka í gang og allt sem sagt skráð og vistað. Þannig hvert og eitt einstaka mál er skoðað og ígrundað eftir notkun.“


Tengdar fréttir

Rafbyssu beitt í fyrsta sinn

Lögregluþjónar á höfuðborgarsvæðinu beittu síðdegis í gær rafbyssu í fyrsta sinn hér á landi. Það var gert vegna vopnaðs einstaklings sem mun hafa sýnt af sér ógnandi hegðun við Miklubraut í gær og var lögreglan með mikinn viðbúnað á svæðinu.

Enginn verið stuðaður með raf­byssu ennþá

Lögreglumenn hafa fimmtán sinnum dregið rafbyssur úr slíðri eða ræst þær eftir að þeir fengu þær fyrst í hendur í september. Enginn hefur enn verið skotinn með rafbyssu af lögreglumönnum. Hver rafbyssa kostar meira en milljón krónur.

Lög­reglu­menn vopnast raf­byssum í byrjun septem­ber

Almenningur má eiga von á að sjá lögreglumenn vopnaða rafbyssum á næstunni en þær verða afhentar lögregluembættum á landinu í fyrstu viku september. Lögreglan segir um helming landsmanna hlynntan rafbyssuburði lögreglumanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×