Skoðun

Styttum bið­tímann í um­ferðinni

Ó. Ingi Tómasson skrifar

Biðtíminn og pirringurinn í umferðinni eykst með hverju ári. Ástæðan er að ekki hefur verið farið í uppbyggingu nauðsynlegra samgöngumannvirkja á höfuðborgarsvæðinu á síðustu áratugum, á sama tíma hefur bifreiðaeign á svæðinu margfaldast. Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins tekur að einhverju leiti á þessu máli. Ár og áratugir munu líða þar til allar væntingar um framkvæmd samgöngusáttmálans nái fram að ganga, á meðan munum við íbúar á höfuðborgarsvæðinu vera áfram í umferðarteppum.

Áætlanir

Samgöngusáttmálinn sem er lausnarmiðaður með samkomulagi um samgöngubætur á stofnvegum og almenningssamgöngum nær til ársins 2040. Ætla má að sá tími lengist eitthvað miðað við aðrar áætlanir sem hafa verið lagðar fram. Fyrirhuguð mislæg gatnamót við Bústaðaveg að Reykjanesbraut er dæmi um hvernig pólitískar áherslur um tafir við uppbyggingu samgöngumannvirkja. Vegagerðin hefur í áraraðir lagt áherslu á mislæg gatnamót á þessum stað, verkefnið sem hefur verið fjármagnað hefur stoppað vegna stefnu borgaryfirvalda á bíllausan lífsstíl. Ekki er sjálfgefið að áætlanir samgöngusáttmálans nái fram að ganga og að því leiti er óvissa um framtíð uppbyggingu samgöngumannvirkja hvað varðar stofnbrautir og borgarlínu. Að þessu leiti má segja að áfram muni bifreiðum fjölga og vandamálin í umferðinni aukast.

Fleytitíð

Orðið fleytitíð kom sennilega fyrst fyrir í umræðunni árið 2005. Vegagerðin gaf út tvær skýrslur um fleytitíð árið 2014. Undirritaður skrifað grein í Fréttablaðið um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu árið 2016 þar sem fjallað var m.a. um einföldu og ódýru leiðina í samgöngum sem er fleytitíð. Þar kemur m.a. fram: „Einfalda lausnin eða öllu heldur ódýra leiðin er að ríki, sveitarfélög og skólar taki höndum saman og skipuleggi vinnutíma starfsfólks og nemenda þannig að upphaf vinnudags sé á mismunandi tímum þannig að álagið á umferðina dreifist á morgnana og svo aftur seinni partinn.“ Fleytitíð snýst um að hliðra til opnunartíma og starfsemi stórra skóla og opinberra stofnana/vinnustaða og deyfa þannig álagstoppa í morgun- og seinnipartumferð. Ávinningurinn er styttri ferðatími, minni pirringur í umferðinni og ávinningur fyrir samfélagið allt þar sem tafatími í umferðinni kostar umtalsverðar upphæðir.

Höfundur er fyrrverandi bæjarfulltrúi í Hafnarfirði.




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×