Skoðun

Róum okkar að­eins í auðlinda­græðginni

Mummi Týr Þórarinsson skrifar

Síðustu árin hefur ásókn í auðlindir landsins vaxið geigvænlega. Nú er svo komið að það er varla sá fjörður til fyrir vestan eða austan sem ekki er nýttur eða eru áform um að nýta fyrir sjókvíaeldi, vindorkuvirkjanir eru fyrirhugaðar á öllum mögulegum stöðum um allt land, ásókn í áður ósnortin landsvæði til uppbyggingar nýrra mannvirkja í ferðaþjónustu vex með degi hverjum, mylja á niður heilu fjöllin sunnanlands, selflytja hluta Mýrdalssands til útflutnings og hver bújörðin á fætur annarri er tekin úr matvælaframleiðslu en lögð undir til að mynda plantekru skógrækt, ferðafólk eða frístundabyggð.

„Við viljum fransbrauð“ góluðu þeir Karíus og Baktus um árið. „Við viljum meiri græna orku og meira ferskvatn“ glymur núna landshluta á milli, úr börkum innlendra og erlendra fjárfesta sem sjá „viðskiptatækifæri“ í hverjum hver, hverjum huldukletti, hverjum berjamó og hverri lindá landsins. Ekkert heildaryfirlit er til staðar af hálfu stjórnvalda yfir auðlindir landsins né samþætt framtíðarskipulag nýtingar þeirra.

Ekkert pláss fyrir villta náttúru nema í frímerkja formi á milli mannvirkja?

Við í Pírötum finnst löngu komin tími til að spyrna við fæti og hægja á þessu offorsi áður en fleiri óafturkræf mistök verða gerð. Við höfum rammaáætlun fyrir virkjanaáform en við þurfum líka að skipuleggja alla auðlindanýtingu á láglendi í samhengi þar sem allt er upp á borðum. Framtíð villtrar náttúru og sameiginlegra auðlinda landsins er undir.

Þó Ísland sé 103.000 km2 að stærð þá eru nefnilega ekki nema um 43.000 km2 (42%) þess á láglendi (neðan 400 metra hæðar yfir sjó), svæði á stærð við Danmörku. Þar fer meira eða minna öll okkar landnýting fram (utan afréttabeitar, útivistar, vatnsaflsvirkjana og einhverrar efnistöku). Því til viðbótar sýnir gróf greining á fyrirliggjandi gögnum að yfir 85% af kortlagðri landnýtingu á Íslandi (þéttbýli og vegir, uppistöðulón, tún og akrar, framræst votlendi, frístundabyggð, skógrækt) fer fram neðan 200 metra hæðalínunnar; á svæði sem er á landsvísu tæplega 25.000 km2 (24%) af heildarstærð landsins.

Það er ríflega 5000 km2 minna landsvæði en Belgía!

Höfundur er oddviti Pírata í Suðurkjördæmi.




Skoðun

Sjá meira


×