Innlent

Ráð­gjafar- og greiningarstöð fjársvelt meðan á­sókn í þjónustu eykst

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Soffía Lárusdóttir forstjóri Ráðgjafa-og greiningarstöðvar barna segir að komi ekki til aukafjárveitinga til stofnunarinnar þurfi að skera niður þjónustu. Tveggja ára biðlisti er eftir þjónustu stofnunarinnar.
Soffía Lárusdóttir forstjóri Ráðgjafa-og greiningarstöðvar barna segir að komi ekki til aukafjárveitinga til stofnunarinnar þurfi að skera niður þjónustu. Tveggja ára biðlisti er eftir þjónustu stofnunarinnar. vísir

Ráðgjafa-og greiningarstöð vantar allt tvö hundruð og fimmtíu milljónir í fjárveitingar til að geta staðið undir lögbundinni þjónustu að sögn forstjóra. Tilvísanir hafi aukist um 60 prósent síðustu ár á meðan hafi fjárveitingar verið skornar niður á fjárlögum. Verði ekki breyting þurfi stofnunin að skera niður þjónustu.

Ráðgjafar- og greiningarstöð sér um ráðgjöf og greiningu barna með víðtækar þroskaskerðingar að 18 ára aldri.

Heimir Bjarnason fjármálastjóri stofnunarinnar vekur athygli á því á Facebook að á sama tíma og ríkisstjórnin hafi ákveðið að byggja Ölfursárbrú þar sem áætlaður kostnaður sé 18 milljarða króna, Nýtt Landsbankahús hafi verið byggt og ráðuneytum verið fjölgað hafi verið gerð þrjátíu og þriggja milljón króna niðurskurðakrafa á Ráðgjafa- og greiningastöð á þessu ári. Það bætist ofan á síðustu fimm til sex ár þar sem aðhaldskrafan sé samanlagt um 60 milljónir króna. Í fjárlögum fyrir næsta ár sé niðurskurðarkrafan 8 milljónir króna. Á sama tíma hafi ásókn í þjónustu stofnunar aukist um 60 prósent frá 2014. Biðlisti fyrir fjölskyldur fatlaðra barna sé nú kominn yfir tvö ár.

Heimir Bjarnason vekur athygli á bágri stöðu Ráðgjafar-og greiningastöðvar á Facebook.Vísir

Mikill rekstrarvandi á sama tíma og ásókn hefur aukist

Soffía Lárusdóttir  forstjóri Ráðgjafar-og greiningarstöðvar segir stofnunina í grafalvarlegri stöðu.

„Við stöndum frammi fyrir talsvert miklum rekstrarvanda á sama tíma og það er mikil ásókn í þjónustu okkar. Við höfum ekki farið í það að draga verulega saman í þjónustu ekki enn en við stöndum frammi fyrir því að þurfa að gera það ef ekki verður breyting á,“ segir Soffía. 

Engin viðbrögð þrátt fyrir góðan vilja

Hún segir að þrátt fyrir að stofnunin hafi mætt skilningi hafi ekki verið brugðist við. 

„Við höfum fundið fyrir góðum samstarfsvilja og skilningi  frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu. Við höfum rætt við ráðuneytið en það er ekki að sjá að það hafi skilað sér inn í fjárlög. Þá hefur Ásmundur Einar Daðason staðið fyrir verkefninu Farsæld barna. Við erum hins vegar ekki að sjá að það hafi skilað sér í skilningi gagnvart okkar stofnun,“ segir Soffía.  

Þurfi að draga úr þjónustu komi ekki til viðbótarframlags

Hún segir að stofnunin þurfi verulegar fjárhæðir til að rétta hallan af.

„Eins og staðan núna þurfum við hundrað og fimmtíu milljónir til að fást við halla stofnunarinnar. Við þurfum hins vegar svona 250 milljónir króna til að við getum veitt þá þjónustu sem stofnunin á að veita,“ segir hún. 

Aðspurð um hvað gerist fái stofnunin ekki aukaframlög svarar Soffía: 

„Ég myndi byrja á að kynna það fyrir barnamálaráðherra og starfsfólki mínu.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×