Fótbolti

Gyökeres skoraði fernu fyrir Svía í Þjóðadeildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Viktor Gyökeres gefur merki um fernu sína eftir fjórða markið sitt og sjötta mark Svía í kvöld.
Viktor Gyökeres gefur merki um fernu sína eftir fjórða markið sitt og sjötta mark Svía í kvöld. Getty/Robbie Jay Barratt

Viktor Gyökeres getur ekki hætt að skora og hann fór á kostum með Svíum í Þjóðadeildinni í kvöld.

Þessi öflugi sænski framherji hefur raðað inn mörkum með bæði portúgalska félaginu Sporting Lissabon sem og með sænska landsliðinu.

Gyökeres skoraði fernu í 6-0 stórsigri Svía á Aserbaídjan í lokaleik liðsins í C-deild Þjóðadeildarinnar.

Svíar voru búnir að tryggja sér sigur í riðlinum og þar með sæti í B-deild í næstu Þjóðadeild.

Gyökeres skoraði annað mark Svía á 26. mínútu, þriðja markið á 37. mínútu, fimmta markið á 58. mínútu og sjötta markið á 70. mínútu.

Dejan Kulusevski, leikmaður Tottenham, skoraði hin mörk Svía í leiknum. Mörkin hans komu Svíum í 1-0 á 10. mínútu og í 4-0 á 57. mínútu.

Alexander Isak, leikmaður Newcastle, klikkaði aftur á móti á vítaspyrnu í leiknum.

Gyökeres skoraði þar með níu mörk í sex leikjum Svía í Þjóðadeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×