Skoðun

Skaðaminnkun bjargar manns­lífum

Jónína Guðný Bogadóttir skrifar

Lyfjatengd andlát hafa verið mikið í umræðunni síðustu daga. Á síðasta ári voru þau alls 56, þar af 34 þar sem ópíóðar komu við sögu. Þessar tölur endurspegla ekki óbein dauðsföll tengd fíknivanda, svo sem vegna sýkinga eða sjálfsvíga án lyfjanotkunar, og má því gera ráð fyrir að heildartalan sé hærri.

Við sem störfum í verkefninu Frú Ragnheiður, sem rekið er af Rauða krossinum, lýsum yfir miklum áhyggjum af þessari þróun og viljum vekja athygli á mikilvægi Naloxone, nefúða sem virkar sem mótefni gegn ópíóðum og er auðveldur í notkun. Aðgengi að Naloxone eykur öryggi og getur skipt sköpum ef ofskömmtun á sér stað.

Árið 2023 heimsóttu 654 einstaklingar Frú Ragnheiði á höfuðborgarsvæðinu alls 5.893 sinnum. Þörfin er mikil og ekkert bendir til að heimsóknir verði færri á þessu ári. Frá opnun neyslurýmisins Ylja í ágúst hafa yfir 110 einstaklingar heimsótt rýmið tæplega 800 sinnum. Þar sem opið er aðeins á dagvinnutíma á virkum dögum er ljóst að aukið fjármagn er nauðsynlegt til að mæta eftirspurn.

Á bak við þessar tölur eru einstaklingar. Einstaklingar sem eiga börn, foreldra, ömmur og afa, frændfólk og vini. Þetta eru einstaklingar sem búa við mikla neyð og þjáningu sem veldur því að þau grípa til örþrifaráða eins og glæpa eða vændis, oftast án valkosta til að breyta aðstæðum sínum. Frú Ragnheiður vinnur eftir skaðaminnkandi hugmyndafræði sem virðir það að til eru einstaklingar sem vilja ekki eða geta ekki hætt notkun vímuefna af einhverjum ástæðum. Öll dreymir þó um betra líf – heimili, fjölskyldutengsl, upplifa öryggi eða snúa við blaðinu.

Því miður er raunveruleikinn sá að biðlistar í meðferð eru langir og mörg úrræði ófullnægjandi. Aðgengi að fjölbreyttum úrræðum og aukinni sálfræðimeðferð er bráðnauðsynlegt, bæði til að styðja við bataferli og til að fyrirbyggja bakslag. Við erum einnig að horfa á alvarlegri afleiðingar fyrir samfélagið, svo sem aukið ofbeldi og lakari geðheilsu. Kerfin þurfa að vinna saman og grípa fyrr inn í. Ef ekki núna, hvenær þá?

Eitt af markmiðum skaðaminnkandi verkefna hjá Rauða krossinum er að lágmarka þann skaða sem felst af því að nota vímuefni. Naloxone spilar þar stóran þátt og með auknu aðgengi og notkun á Naloxone má koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll. Hægt er að nálgast Naloxone gjaldfrjálst hjá bæði Frú Ragnheiði í síma 788-7123 og hjá Ylju í síma 774-2957.

Höfundur er hjúkrunarfræðingur í skaðaminnkandi verkefnum Rauða krossins.




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×