Innlent

Bíll festist eftir aurskriðu við Dýrafjarðargöng

Jón Þór Stefánsson skrifar
Aurskriðan varð Dýrafjarðarmegin. Myndin er úr safni.
Aurskriðan varð Dýrafjarðarmegin. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Vegurinn að gangamunna Dýrafjarðarganga lokaður vegna aurskriðu. Einn bíll var á ferðinni og festist í aurnum, en ökumaður sem var einn í bílnum slasaðist ekki.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum.

Þar segir að fyrir skömmu hafi fallið aurskriða úr hlíðinni fyrir ofan veginn að gangamunna Dýrafjarðarganga, Dýrafjarðarmegin.

„Lögreglan og Vegagerðin eru á leið á vettvang. Umferð um veginn hefur verið lokað um sinn meðan verið er að meta aðstæður.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×