Innlent

Eitt barn enn á gjör­gæslu og líðan þess stöðug

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Leikskólinn Mánagarður var opnaður á ný í dag.
Leikskólinn Mánagarður var opnaður á ný í dag. vísir/einar

Eitt barn er enn á gjörgæslu í öndunarvél vegna E.coli sýkingar sem kom upp á leikskólanum Mánagarði. Valtýr Stefánsson Thors, yfirlæknir á barnaspítala Hringsins, segir líðan þess stöðuga.

Þegar mest lét voru fimm börn á gjörgæslu og segir Valtýr að ástandið sé að þokast í rétta átt. Tíu börn voru inniliggjandi í morgun á spítala og eru flest þeirra sögð á batavegi.

Leikskólinn var opnaður á ný í dag en heimild fékkst til þess fyrir helgi eftir umfangsmikla sótthreinsun. Börnin fá nú aðsendan mat frá Skólamat en áður var hann matreiddur á staðnum. 55 börn voru í leikskólanum í dag af þeim 128 sem eru skráð.

Líkt og fram hefur komið var uppruni sýkingarinnar í hakki sem framleitt var hjá Kjarnafæði en rannsókn leiddi í ljós að meðhöndlun þess var ekki fullnægjandi. Matráður leikskólans sagði upp störfum í síðustu viku. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×