Bíó og sjónvarp

Frum­sýning á Vísi: IceGuys dæmdir til sam­fé­lags­þjónustu í seríu tvö

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Strákarnir komast í hann krappan í annarri seríu ásamt umboðsmanninum Mollý.
Strákarnir komast í hann krappan í annarri seríu ásamt umboðsmanninum Mollý. Baldur Kristjáns

Strákarnir í IceGuys komast í hann krappann í annarri seríu í samnefndum þáttum þegar þeir eru dæmdir til samfélagsþjónustu eftir dularfullt hvarfs Arons Can. Fyrsta stiklan úr seríunni er frumsýnd á Vísi. 

Endurkoma sjónvarpsþáttanna var tilkynnt um síðustu áramót en von er á IceGuys 2 í Sjónvarp Símans í lok nóvember. Fyrsti þáttur fer í loftið 24. nóvember. Lög sveitarinnar hafa hljómað í eyrum landsmanna seinustu misseri en ný plata sveitarinnar, 1918, hefur notið mikilla vinsælda frá útgáfu hennar fyrr í þessum mánuði.

Fyrsta þáttaröðin endaði með dramatískum hætti þar sem Aron Can stakk af með alla peninga sveitarinnar og hinir meðlimir sveitarinnar sátu eftir með sárt ennið og vissu ekkert hvað varð um vin þeirra, Aron Can. Hvar er Aron? Hvar eru peningarnir? Hvað gera strákarnir núna?

Ísköld áskorun að kafa í næsta fasa IceGuys

„Við hjá Símanum erum full tilhlökkunar að frumsýna glænýja þáttaröð af IceGuys. Strákarnir eru nýbúnir að selja upp fimm Laugardalshallir fyrir jólatónleikana sína og því tilvalið fyrir IceGang aðdáenda hópinn að byrja snemma með sannarlega stórkostlegri þáttaröð,“ er haft eftir Maríu Björk Einarsdóttur, forstjóra Símans í tilkynningu.

Þættirnir eru sem fyrr í leikstjórn Allans Sigurðssonar, Hannesar Þór Arasonar og Hannesar Þórs Halldórssonar, en fyrirtækið Atlavík sem er í eigu leikstjórana fer með framleiðsluna á þáttunum. Handritshöfundur þáttanna er svo enginn annar en Sóli Hólm.

„Það var stór og ísköld áskorun að kafa dýpra í næsta fasa Iceguys sögunnar eftir rússíbana síðasta árs en það hafðist og hér erum við, Iceguys 2. Margir mánuðir fóru í þróunarferli, gríðarlegt púður var lagt í tökurnar og það er erfitt að lýsa metnaðinum og drifkraftinum sem liggur á bak við gerð þessara þátta,“ segir Hannes Þór Halldórsson leikstjóri hjá Atlavík.

„IceGuys heimurinn er óútreiknanlegur og þar getur allt gerst. Í seríu 2 skiptum við um gír og keyrum allt í botn og við vonum að áhorfendur upplifi og skynji ástríðuna sem við lögðum öll í þetta verkefni.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×