Innlent

Á ekki von á að þeim fjölgi sem þurfi innlögn vegna E.coli

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Valtýr Stefánsson Thors, yfirlæknir barnalækninga við Landspítalann segir stöðuna svipaða og undanfarna daga.
Valtýr Stefánsson Thors, yfirlæknir barnalækninga við Landspítalann segir stöðuna svipaða og undanfarna daga. vísir

Eitt barn var útskrifað af gjörgæslu í gær og fjögur liggja þar inni vegna Ecoli sýkingar. Yfirlæknir segist ekki eiga von á að þeim fjölgi mikið sem þurfi að leggjast inn vegna sýkingarinnar. 

Ellefu börn liggja inni á Barnaspítala hringsins með Ecoli eftir að sýking kom upp á leikskólanum Mánagarði í Reykjavík í síðustu viku. Valtýr Stefánsson Thors, yfirlæknir barnalækninga við Landspítalann segir stöðuna svipaða og undanfarna daga.

„Þó það hafi aðeins dregið úr eftirlitinu hjá þeim sem eru að koma að heiman og koma annan hvern dag í blóðgjöf og vökvagjöf í gegnum bráðamóttökuna, þannig sá hópur er smátt og smátt að minnka, samt var ein í innlögn í gær á deildina. Það er býsna þungt ástandið og svo er það gjörgæslan, þar liggja fjögur börn og eitt útskrifað í gær.“

Ástand þeirra barna sem liggja á gjörgæslu er stöðugt.

„En þau börn sem eru á svokallaðri skiljunarmeðferð þar sem starfsemi nýrnanna er tekin yfr, það má gera ráð fyrir að þau þurfi að vera þar í tvær til þrjár vikur allt í allt, þetta er langur tími.“

Staðan þung

Þannig þú heldur að það sé hætt að bæta í þann hóp sem þarf að leggjast inn? 

„Já það er vonin til þess að hópurinn, heildarhópurinn af börnunum sem hefur smitast, það hefur lítið bæst í hann. Þetta eru 45 börn og við teljum ólíklegt að margir muni bætast við og vonandi enginn.“

Þó staðan sé þung hafi vinnan gengið vel.

„Hvernig allir hafa snúið bökum saman og stillt strengina þannig að við getum gert þetta, það á allt starfsfólk barnaspítalans og á gjörgæslunni mikið hrós skilið. Þetta hefur gengið alveg frábærlega.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×