Viðskipti innlent

Samkeppniseftirlitið í sáttaviðræðum við Festi

Lovísa Arnardóttir skrifar
Ásta Sigríður Fjeldsted er forstjóri Festi
Ásta Sigríður Fjeldsted er forstjóri Festi

Samkeppniseftirlitið hefur fallist á að hefja sáttaviðræður við Festi hf. vegna ætlaðra brota félagsins á samkeppnislögum vegna samruna við Hlekk ehf. sem hét áður Festi hf. Rannsóknin nær samkvæmt tilkynningu aftur til ársins 2018. 

Í tilkynningu segir að fyrirtækið geri sér grein fyrir því að málinu geti lokið með því að þau þurfi að greiða sekt. Festi hf. á fyrirtæki eins og Lyfju, N1, Yrki, Elko og Krónuna.

Í tilkynningunni segir enn fremur að Samkeppniseftirlitið hafi haft til rannsóknar ætluð brot Festi hf. á skilyrðum í sátt sem félagið gerði við Samkeppniseftirlitið þann 30. júlí 2018 vegna samruna við Hlekk ehf. (þá nefnt Festi hf.) og 17. og 19. samkeppnislaga nr. 44/2005.

Í tilkynningu er bent á að í 17. grein samkeppnislaga segi að hafi fyrirtæki gerst brotlegt við ákvæði laganna sé Samkeppniseftirlitinu heimilt að ljúka málinu með sátt. Festi hf. hafi óskað eftir formlegum viðræðum til að kanna hvort möguleiki væri á því og að Samkeppniseftirlitið hafi fallið á það.

„Í sáttaviðræðum er leitað leiða til að bregðast með ásættanlegum hætti við þeim aðgerðum Festi hf. sem lýst er í andmælaskjali Samkeppniseftirlitsins frá 20. desember 2023. Náist niðurstaða í sáttaviðræðunum mun það fela í sér endanlegar lyktir gagnvart Festi hf. á þeirri rannsókn og málsmeðferð sem lýst er í andmælaskjali Samkeppniseftirlitsins. Festi hf. gerir sér grein fyrir að lyktir málsins kunna að fela í sér að félaginu verði gert að greiða sekt,“ segir í tilkynningu að lokum.


Tengdar fréttir

Verð­mat Fest­ar hækk­að­i um átta millj­arð­a vegn­a Lyfj­u

Verðmat Festar hækkaði um tólf prósent, einkum vegna hærri rekstraráætlunar í kjölfar þess að Lyfja varð hluti af samstæðunni. Tilkoma Lyfju í samstæðu Festar hefur „vitanlega nokkur áhrif á rekstraráætlun“ samstæðunnar, bendir greinandi á. Tekjur og framlegð Festar var umfram væntingar á öðrum ársfjórðungi, að hans sögn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×