Bíó og sjónvarp

Ulf Pilgaard er látinn

Árni Sæberg skrifar
Ulf Pilgaard lék á móti stórleikaranum Nikolaj Coster-Waldau í Næturvaktinni.
Ulf Pilgaard lék á móti stórleikaranum Nikolaj Coster-Waldau í Næturvaktinni. Rolf Konow/Getty

Danski leikarinn Ulf Pilgaard er látinn, 83 ára að aldri, eftir snörp veikindi. Hann gerði garðinn helst frægan fyrir leik í kvikmyndaflokknum Næturvaktinni og fyrir þátttöku í Sirkusrevíunni í fjóra áratugi.

Frá þessu greinir Christian Pilgaard, sonur hans, í fréttatilkynningu. „Elskulegur faðir minn er látinn. Ég mun sakna nærveru hans og lífsgleði og minning hans mun lifa um ókomna tíð í hjörtum okkar.

Í umfjöllun danska ríkisútvarpsins segir að Pilgaard hafi verið einn þekktasti leikari og grínisti Danmerkur síðastliðin rúm fjörutíu ár. Hann hafi til að mynda verið burðarstólpi í Sirkusrevíunni í Bakken í fjörutíu ár.

Á síðustu árum hafi hann til að mynda leikið í þáttunum Borgen og kvikmyndum á borð við Kongekabale og Næturvaktina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×