Viðskipti innlent

Rotovia kaupir mexíkóskt fyrir­tæki

Árni Sæberg skrifar
Daði Valdimarsson er forstjóri Rotovia.
Daði Valdimarsson er forstjóri Rotovia. Rotovia

Dalvíska plastfyrirtækið Rotovia hefur fest kaup á mexíkóska fyrirtækinu Ollin Plastics, sem sérhæfir sig í framleiðslu á hverfisteyptum afurðum.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Rotovia sé leiðandi í hönnun og framleiðslu á hverfisteypum lausnum. Kaupin marki tímamót fyrir samstæðu Rotovia sem geti nú þjónustað alþjóðlega viðskiptavini sína í Norður-Ameríku í ríkari mæli en áður, en kaupin styðji einnig fyrirætlanir Rotovia um ytri vöxt.

Tuttugu milljóna dala velta og 130 starfsmenn

Ollin Plastics sé staðsett í Monterrey í Mexíkó og sérhæfi sig í hágæða hverfisteyptum vörum. Verksmiðjan hafi hafið starfsemi árið 2022 og með nýjustu tækni og mikilli áherslu á gæði, bjóði Ollin Plastics viðskiptavinum sínum upp á stuðning við vöruhönnun ásamt miklum möguleikum þegar kemur að samsetningu. 

Veltan í ár verði um tuttugu milljónir dala og hjá félaginu starfi um 130 manns.

Styður við frekari vöxt í Norður-Ameríku

„Ég tel að með þessum kaupum geti Rotovia nýtt sér styrkleika Ollin Plastics til þess að ýta undir nýsköpun og vöxt í iðnaðinum. Kaupin á Ollin Plastics styðja mjög vel við langtímamarkmið félagsins og enn frekari vöxt í Norður-Ameríku, bæði á okkar eigin vörum og einnig í framleiðslu á vörum viðskiptavina okkar,“ er haft eftir Daða Valdimarssyni, forstjóra Rotovia.

Í tilkynningu segir að Rotovia framleiði og hanni sínar eigin vörur undir vörumerkjunum Sæplast, Tempra, iTUB og VARIBOX ásamt því að framleiða ýmsa íhluti fyrir bílaframleiðendur, framleiðendur landbúnaðartækja, vindmylluframleiðendur og fleiri geira. Hjá Rotovia starfi um 850 starfsmenn í ellefu verksmiðjum í átta löndum. Fyrirtækið sé með höfuðstöðvar sínar á Dalvík.

„Við erum mjög spennt að verða hluti af Rotovia og hlökkum til þeirra vaxtartækifæra sem þessi samruni skapar. Saman getum við náð miklum árangri og haldið áfram að skila miklu virði til viðskiptavina okkar,“ er haft eftir Carlos De Santiago, verksmiðjustjóra Ollin Plastics.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×