Innlent

Hnífstunguárás í gistiskýlinu

Árni Sæberg skrifar
Gistiskýlið á Lindargötu í Reykjavík.
Gistiskýlið á Lindargötu í Reykjavík. Stöð 2/Egill

Hnífstunguárásin sem greint var frá í morgun var framin í gistiskýli fyrir heimilislausa karlmenn á Lindargötu. Það er önnur hnífstunguárásin sem framin er í gistiskýlum borgarinnar á örfáum mánuðum.

Í dagbókarfærslu lögreglu fyrir gærkvöldi og nóttina segir að einn hafi verið handtekinn í kjölfar líkamsárásar þar sem hníf var beitt. Áverkar árásarþola eru sagðir hafa verið minniháttar en engar frekari upplýsingar um málið er að finna í yfirliti lögreglu.

Samkvæmt heimildum Vísis var árásin framin í gistiskýlinu á Lindargötu, þar sem 25 heimilislausir karlmenn fá inni. Áverkar hins stungna hafi ekki verið mjög alvarlegir en talsvert hafi sést á honum.

Talsvert um vopnaburð

Samkvæmt heimildum er vopnaburður inni í gistiskýlinu talsverður og árásin nú hafi verið framin með hníf sem ekki er ætlaður til eldamennsku eða annarrar löglegrar brúkunar.

Í lok ágúst var greint frá því að tveir hafi verið stungnir í gistiskýlinu á Granda. Hvorugur hlaut alvarlega áverka en annar hinna stungnu var sendur á slysadeild til aðhlynningar. Stuttu síðar var grunaður árásarmaður handtekinn skammt frá vettvangi þar sem hann hafði falið sig undir bifreið.


Tengdar fréttir

Tveir stungnir í gistiskýlinu Granda

Tveir urðu fyrir stunguárás í gistiskýlinu á Granda í dag. Hvorugur hlaut alvarlega áverka en annar hinna stungnu var sendur á slysadeild til aðhlynningar. Stuttu síðar var grunaður árásarmaður handtekinn skammt frá vettvangi þar sem hann hafði falið sig undir bifreið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×