Körfubolti

Völdu ekki Bronny af virðingu við LeBron

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Bronny James Jr. og LeBron James munu að öllum líkindum spila saman í vetur.
Bronny James Jr. og LeBron James munu að öllum líkindum spila saman í vetur. Kevork Djansezian/Getty Images

Bronny James, sonur LeBron James, mun spila með karli föður sínum á komandi tímabili í NBA-deildinni í körfubolta. Los Angeles Lakers valdi Bronny í nýliðavali deildarinnar en annað lið var með soninn á óskalista sínum en vildi virða óskir föðurins.

LeBron verður fertugur í lok desember en fátt virðist fá þennan stórbrotna íþróttamann stöðvað. Hann var einn besti leikmaður Ólympíuleikanna í sumar þar sem Bandaríkin fóru með sigur af hólmi.

Það hefur lengi vel verið ósk Lebron að spila með syni sínum áður en skórnir færu upp á hillu. Það stefnir í að hann fái ósk sína uppfyllta í vetur þar sem þeir feðgar eru báðir á mála hjá Lakers eftir að félagið valdi Bronny í nýliðavalinu.

Nú hefur verið greint frá því að Golden State Warriors hafi verið með Bronny á lista hjá sér og hafi íhugað að velja hann en hættu á endanum vegna virðingar við LeBron og drauma hans um að spila með syni sínum.

Undirbúningstímabil NBA-deildarinnar hófst í liðinni viku þegar Lakers tapaði fyrir Minnesota Timberwolves, 107-124. Bronny spilaði 16 mínútur, skoraði tvö stig, gaf eina stoðsendingu og tók eitt frákast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×