Innlent

Sig­mundur góður sessu­nautur af því að hann mæti sjaldan

Árni Sæberg skrifar
Ef marka má færslu Björns Levís gerist það sjaldan að setið er í öllum þessum sætum.
Ef marka má færslu Björns Levís gerist það sjaldan að setið er í öllum þessum sætum. X

„Sigmundur Davíð er sessunautur minn á þessu þingi. Hann hefur verið það einu sinni áður. Hann er mjög góður sessunautur af því að hann situr eiginlega aldrei í sætinu sínu,“ segir þingmaður Pírata um formann Miðflokksins. Hann veltir því fyrir sér hvort leiðin að 19 prósenta fylgi sé að mæta ekki í vinnuna.

Þetta segir Björn Leví Gunnarsson í langri færslu á Facebook, þar sem hann birtir meðal annars einhver konar rappeinvígi milli Sigmundar Davíðs árið 2009 og Sigmundar Davíðs árið 2024, sem samið er af gervigreind.

Fær meira pláss í litlum salnum

Björn Leví segir það mikinn kost sessunautar á Alþingi að mæta sjaldan á þingfundi, enda fái hann aðeins meira pláss í litlum þingsalnum.

Fleiri þingmenn Pírata ættu því að geta fagnað með Birni Leví, enda dróst Sigmundur Davíð á borð með þremur Pírötum.

„Stundum hefur mér þótt Píratarnir vera alveg á réttri línu, til dæmis með persónufrelsi og tölvumálin sem þeir eru auðvitað áhugasamir um. En stundum verða þeir alveg mjög skrýtnir. Þannig ég veit ekki alveg hverju ég á von á í þessum hópi. Það var strax byrjað að reyna að sannfæra mig um að ganga til liðs við þennan hóp sem varð þarna til fyrir tilviljun,“ sagði Sigmundur Davíð í samtali við Vísi eftir að dregið hafði verið í sæti.

Mæti ekki á nefndarfundi heldur

Björn Leví segir aftur á móti að mæting á þingfundi segi ekki alla söguna. Mæting í nefndir sé aðeins betri vísbending um það hvernig þingmaður sinni starfi sínu. Sigmundur Davíð sé skráður aðalmaður í tvær nefndir, framtíðarnefnd og utanríkismálanefnd.

Miðað við fundargerðir utanríkisnefndar hafi Sigmundur Davíð mætt átta sinnum á réttum tíma á fundi hennar, fjórum sinnum of seint eða farið snemma og 19 sinnum ekki mætt yfir höfuð.

Í framtíðarnefnd hafi hann verið fjarverandi á öllum fundum utan þess fyrsta, sem komnar eru fundargerðir fyrir.

„Var hann kannski í áheyrnarnefndunum í staðinn? Nei, ég skoðaði svona 30 fundargerðir frá atvinnuveganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd og fann hann hvergi í þeim fundargerðum enda veit ég ekki til þess að hann hafi mætt á neina af þeim fundum og nennti því ekki að leita meira.“

Leiðin að nítján prósenta fylgi?

„Er þetta leiðin til þess að fá 19% í skoðanakönnum? Að sinna bara ekki þingstörfunum? Ef svo er þá þarf ég alvarlega að fara að íhuga hvernig ég sinni þessu starfi --- eða ekki,“ segir Björn Leví.

Í nýjast þjóðarpúlsi Gallup, sem birtur var í gær mælist Miðflokkur Sigmundar Davíðs með 19 prósenta fylgi og er næststærsti flokkur landsins.

Félli ef hann væri í menntaskóla

Björn Leví er ekki sá fyrsti til þess að gagnrýna takmarkaða viðveru Sigmundar Davíðs í þinginu. Í grein Lilju Hrundar Lúðvíksdóttur, starfsmanns þingflokks Sjálfstæðiflokksins, á dögunum kom fram að fjarvistarhlutfall Sigmundar Davíðs við atkvæðagreiðslur hefði verið 62 prósent á síðasta þingvetri.

Nokkuð ljóst er að enginn kæmist upp með slíka mætingu í menntaskóla.

Þá benti Lilja Hrund einnig á að á síðustu sex þingvetrum hafi Sigmundur Davíð aðeins lagt fram frumvarp fimm sinnum, öll um sömu tvö málin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×