Fótbolti

Brasilíski mið­vörðurinn gríðar­lega eftir­sóttur

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Táningurinn fagnar sínu fyrsta marki fyrir Palmeiras.
Táningurinn fagnar sínu fyrsta marki fyrir Palmeiras. Roberto Casimiro/Getty Images

Vitor Reis, 18 ára gamall miðvörður Palmeiras í heimalandinu Brasilíu, er heldur betur eftirsóttur. Hann er á óskalista Arsenal, Real Madríd sem og annarra stórliða.

Miðvörðurinn skrifaði nýverið undir nýjan samning við Palmeiras til ársins 2028. Í samningnum er klásúla sem gerir liðum kleift að kaupa hann á 100 milljónir evra eða 15 milljarða íslenskra króna.

Líklega er félagið þó til í að selja táninginn á talsvert lægri upphæð en það vonast engu að síður til að halda Reis í sínum röðum fram yfir HM félagsliða sem fram fer á næsta ári.

Í frétt The Athletic segir að ásamt Arsenal og Real Madríd séu einu liðin sem hafa lagt fram fyrirspurn varðandi möguleikann á að fá leikmanninn í sínar raðir. Barcelona, Liverpool og Chelsea eru einnig með leikmanninn á óskalista sínum.

Flest þessara liða að Chelsea undanskildu eru með brasilíska leikmenn á sínum snærum en Real Madríd er án efa það lið sem hefur verið hvað duglegast að kaupa efnilega leikmenn þaðan undanfarin ár.

Hvort þeir bæti Reis við listann sem inniheldur Éder Militão, Vinícius Júnior, Rodrygo og Endrick kemur í ljós á næstu misserum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×