Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu

Nkunku hélt upp á þriðja markið með því að blása upp blöðru.
Nkunku hélt upp á þriðja markið með því að blása upp blöðru. Mike Hewitt/Getty Images

Enzo Maresca skipti öllu byrjunarliði sínu út frá deildarsigri laugardagsins á West Ham United, enda úr sérlega stórum leikmannahópi að velja. D-deildarlið Barrow var ekki mikil fyrirstaða fyrir sterkt „varalið“ Chelsea.

Christopher Nkunku skoraði fyrstu tvö mörk Lundúnaliðsins áður en korter var liðið og þá þýddi sjálfsmark Barrow-liðsins að staðan var 3-0 í hálfleik.

Portúgalinn Pedro Neto skoraði snemma í síðari hálfleik áður en Nkunku skoraði sitt þriðja mark til að innsigla 5-0 sigur Chelsea.

Chelsea er því komið áfram í fjórðu umferð keppninnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira