Fótbolti

Stuðnings­menn gengu ber­serks­gang og þjálfarinn fann fyrir því

Aron Guðmundsson skrifar
Aleksandar Stanojević hefur ekki átt sjö dagana sæla sem þjálfari Partizan upp á síðkastið
Aleksandar Stanojević hefur ekki átt sjö dagana sæla sem þjálfari Partizan upp á síðkastið Skjáskot

Stuðningsmenn serbneska liðsins Partizan Belgrad voru allt annað en sáttir með sitt lið sem laut í lægra haldi, 4-0, gegn erkifjendum sínum í Rauðu stjörnunni í gærkvöldi. Þjálfari liðsins hlaut höfuðáverka eftir leik og þá létu þeir óánægju sína bitna á búningsklefa liðsins. 

Þetta var þriðji nágrannaslagurinn í röð sem Rauða stjarnan vinnur en leikur gærkvöldsins var sá stærsti síðan árið 1998 þegar að Rauða stjarnan vann viðureign liðanna þá einnig með fjögurra marka mun. 

Stuðningsmenn Partizan Belgrad sérstaklega erfitt að tapa fyrir erkifjendunum og frammistaða þeirra manna í gær vakti upp óeirðir. 

Það vakti sérstaka athygli að á blaðamannafundi eftir leik mætti þjálfari Partizan Aleksandar Stanojevic, sem var á sínum tíma leikmaður og hefur á þremur mismunandi tímapunktum á sínum þjálfaraferli tekið við þjálfun Partizan, með plástra á andlitinu.

„Óánægðir stuðningsmenn okkar brutu gler í búningsklefanum en það er engin ástæða til þess að blása þetta upp,“ sagði Alexsandar sem gerði lítið úr málavendingunum.

„Það urðu engin átök, engin líkamleg átök. Ekkert drama,“ bætti hann við og sagði tap gærkvöldsins það versta á sínum ferli.

„Ég tek fulla ábyrgð á þessu. Það er mér að kenna hvernig við töpuðum þessum leik. Okkur til skammar og fyrir mig versta tapið á ferlinum.“

Það hefur hvorki gengið né rekið hjá Partizan á yfirstandandi tímabili og er liðið án sigurs í síðustu átta leikjum sínum í öllum keppnum og tapið í gær var það annað í röð í deildinni. Partizan er sem stendur í 9.sæti serbnesku úrvalsdeildarinnar með ellefu stig eftir sjö umferðir. Ellefu stigum á eftir Rauðu stjörnunni sem situr á toppi deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×