Íslenski boltinn

Sjáðu ó­trú­lega sjö mínútna þrennu Smith og tvennu Nadíu

Valur Páll Eiríksson skrifar
Samantha Smith, framherji Breiðabliks.
Samantha Smith, framherji Breiðabliks. Vísir/Diego

Allt stefnir í hreinan úrslitaleik Vals og Breiðabliks um Íslandsmeistaratitil kvenna í fótbolta í lokaumferð Bestu deildar kvenna. Bæði lið unnu leiki sína í gær þar sem bandarískur framherji Blika stal senunni.

Samantha Smith hefur farið hamförum frá því að hún skipti frá FHL til Breiðabliks um mitt sumar en hún hafði þá lagt grunninn að því að FHL tryggði sæti sitt í Bestu deildinni, og reynir nú við annan deildartitil. Smith skoraði 15 mörk í 14 leikjum fyrir austan áður en hún flutti í Kópavoginn.

Hjá Blikum hafði hún skorað fjögur í jafnmörgum leikjum fyrir leik gærdagsins við Þór/KA á Kópavogsvelli. Þar voru aðeins 14 mínútur liðnar þegar Smith var búin að skora þrjú. Mörkin því orðin sjö í fimm leikjum.

Þær Andrea Rut Bjarnadóttir, Kristín Dís Árnadóttir og Vigdís Lilja Kristjánsdóttir settu þá eitt hver áður en Sandra María Jessen skoraði sárabótamark fyrir Norðankonur, hennar 22. mark í deildinni í sumar.

Klippa: Skoraði þrennu á sjö mínútum

Valur er aðeins stigi á eftir Breiðabliki þegar tvær umferðir eru eftir af deildinni. Valskonur unnu 2-0 sigur á FH að Hlíðarenda í gær þar sem Nadía Atladóttir, fyrrum leikmaður FH, skoraði mark í sitt hvorum hálfleiknum fyrir Valskonur.

Klippa: Mörk Nadíu fyrir Val gegn FH

Á föstudag gerðu þá Víkingur og Þróttur 1-1 jafntefli í efri hluta Bestu deildinnar. Hulda Ösp Ágústsdóttir kom Víkingum yfir en Þórdís Nanna Ágústsdóttir jafnaði undir lok leiks.

Klippa: Mörkin úr jafntefli Víkings og Þróttar

Öll mörkin má sjá í spilurunum að ofan.

Næstu helgi mætir Breiðblik FH-ingum í Kópavoginum en Valur sækir Víking heim. Fái liðin sama stigafjölda úr leikjum sínum verður hreinn úrslitaleikur milli liðanna tveggja um Íslandsmeistaratitilinn á Hlíðarenda 5. október næst komandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×