Mál Samherja gegn Odee tekið fyrir dóm í vikunni Kjartan Kjartansson skrifar 24. september 2024 08:53 ODEE (Oddur Eysteinn Friðriksson) þarf að verja sig fyrir dómi í Bretlandi í vikunni. Davíð Þór/Heimildin Réttarhöld í máli Samherja gegn Oddi Eysteni Friðrikssyni, sem gengur undir listamannsnafninu Odee, hefjast í London á fimmtudag. Samherji höfðaði málið eftir að Oddur sendi út afsökunarbeiðni í nafni fyrirtækisins vegna framgöngu þess í Namibíu.
Afsökunarbeiðnin og vefsíða sem Oddur smíðaði og lét líta út fyrir að vera á vegum Samherja var hluti af útskriftarverkefni hans við Háskólans í Björgvin í Noregi. Oddur hefur ítrekað reynt að blekkja fjölmiðla með fölskum fréttatilkynningum sem hann hefur sent út, nú síðast í nafni bandarísku kaffihúsakeðjunnar Starbucks. Samherji óskaði eftir því að Oddur tæki vefsíðuna niður, afhenti fyrirtækinu lén hennar og gerði grein fyrir því að síðan hefði verið fölsuð. Því neitaði hann. Í kjölfarið stefndi Samherji Oddi fyrir breskum dómstól en vefsíðan var hýst í Bretlandi. Í viðtali norska ríkisútvarpsins NRK við Odd kemur fram að réttarhöldin hefjist á fimmtudaginn, 26. september. „Þeir vilja að ég skili vefsíðunni og eyði öllu tengdu listaverkinu,“ segir hann við NRK. Vilja aðeins stöðva gjörninginn Haft er eftir Þorsteini Má Baldvinssyni, forstjóra Samherja, að Oddur hafi gerst sekur um hugverkabrot. Í ljósi þess að Oddur hafi neitað að bregast við óskum fyrirtækisins hafi það haft þann kost einan eftir að leita til dómstóla. „Samherji hefur engan áhuga á að stefna [Oddi] umfram það að stöðva vísvitandi ólögleg brot hans.“ Afsökunarbeiðnin sem Oddur gaf út í nafni Samherja tengdist ásökum á hendur sjávarútvegsrisanum vegna spillingarmála í Namibíu. Fulltrúar fyrirtækisins voru sakaðir um að bera fé á áhrifamenn þar til þess að tryggja sér aflaheimildir. Bandalag íslenskra listamanna lýsti yfir stuðningi við Odd í sumar og hvatti Samherja til þess að láta málið gegn honum falla niður.
Bretland Dómsmál Samherjaskjölin Sjávarútvegur Menning Mest lesið Maðurinn fannst látinn Innlent Grunaðir um að skiptast á að nauðga konu Innlent Krefja blaðamann Samstöðvarinnar um fimmtán milljónir Innlent Icelandair þurfi að kannast við reglur réttarríkisins Innlent Demókratar uggandi yfir niðurstöðum skoðanakannana Erlent Vandasöm andlitslömun sem greinist vikulega á Íslandi Innlent Sviku út tugi milljóna með því að þykjast vera Brad Pitt Erlent Skutu viðvörunarskotum að norsku skipi í norskri lögsögu Erlent Segir gagnrýni kvenna á leikskólastefnu Kópavogs tvískinnung Innlent Garðabæ óheimilt að skerða þjónustu við ellefu ára stúlku Innlent Fleiri fréttir Tveir hafa játað sök í stóra fíkniefnamálinu sem fer ekki fet Verður formaður stjórnar Matvælasjóðs Faðirinn ekki lengur í einangrun Þurfi að komast út úr kjarasamningum „með góðu eða illu“ Landris og kvikusöfnun heldur áfram Sigurður Ingi segir skort á sálfræðingum vandamál Baldur greiddi fjórðung kostnaðar við framboð sitt sjálfur Maðurinn fannst látinn Garðabæ óheimilt að skerða þjónustu við ellefu ára stúlku Bein útsending: Málþing um fóstur- og nýburaskimanir Svandís vill formannsstólinn og það hægir á íbúðauppbyggingu Fjarðarheiði lokuð og bílar fastir Bjarkey ekki undir feldi Segir gagnrýni kvenna á leikskólastefnu Kópavogs tvískinnung Einn á slysadeild eftir árekstur tveggja hlaupahjóla Icelandair þurfi að kannast við reglur réttarríkisins Pallborðið: „Taumlaus græðgi“ eða verðið á hveiti? Svandís gefur kost á sér og vill kosningar í vor Fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir föðurnum Mál Samherja gegn Odee tekið fyrir dóm í vikunni Grunaðir um að skiptast á að nauðga konu Krefja blaðamann Samstöðvarinnar um fimmtán milljónir Slagsmál, líkamsárásir og ellefu í fangageymslum Þarf ekki að skerða heitt vatn í vetur vegna nýrrar borholu Erfið umræða sem fólk hafi veigrað sér við að taka Vandasöm andlitslömun sem greinist vikulega á Íslandi Forréttindi fyrir fámenna þjóð að hafa jafn öflugar flugsamgöngur „Þetta er ekki átak til einhverra daga eða vikna“ Skilur að fólk sé hugsi yfir mögulegum skyldleika við sæðisgjöf Úkraínumenn berjist með „aðra hönd bundna fyrir aftan bak“ Sjá meira