Enski boltinn

„Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfir­borði jarðar“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Pep Guardiola segir að allir vonist til að Manchester City verði dæmt fyrir brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar.
Pep Guardiola segir að allir vonist til að Manchester City verði dæmt fyrir brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar. getty/Alex Pantling

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, segir að keppinautar þess óski félaginu alls hins versta í tengslum við rannsókn á meintum brotum þess á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar.

City er sakað um 115 brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar. Réttarhöld yfir félaginu hófust á mánudaginn.

City hafnar sök en Guardiola segir að andstæðingar félagsins vonist eftir að því verði refsað harðlega.   

„Ég vil verja félagið mitt, sérstaklega á þessum tímum þegar allir búast ekki bara við að við verðum felldir heldur þurrkaðir af yfirborði jarðar,“ sagði Guardiola á blaðamannafundi fyrir stórleikinn gegn Arsenal sem fer fram á Etihad í dag.

City hefur unnið Englandsmeistaratitilinn fjórum sinnum í röð og sex sinnum á síðustu sjö árum. Ef félagið verður fundið sekt um að hafa brotið fjármálareglur ensku úrvalsdeildarinnar gæti það verið svipt titlunum og fellt niður um deild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×