Innlent

Í gæslu­varð­hald vegna kókaín­sendingar

Kjartan Kjartansson skrifar
Kókaínið barst til landsins með póstsendingu. Myndin sýnir vöruafgreiðslu Póstsins og tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti.
Kókaínið barst til landsins með póstsendingu. Myndin sýnir vöruafgreiðslu Póstsins og tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. Vísir/Vilhelm

Tveir menn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna kókaínsinnflutnings í póstsendingu í vikunni. Öðrum þeirra var sleppt úr haldi í dag.

Lögreglan lagði hald á rúmlega kíló af kókaíni þegar það kom til landsins með póstsendingu, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði mennina tvo í vikulangt gæsluvarðhald í vikunni í þágu rannsóknarinnar. Henni er sagt miða vel og öðrum mannanna hafi verið sleppt fyrr í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×