Skoðun

Hátt reitt til höggs

Hjálmar Jónsson skrifar

Það kemur mér ekki á óvart að núverandi stjórn Blaðamannafélags Íslands hafi ákveðið að kæra mig ekki fyrir brot í starfi framkvæmdastjóra félagsins, eins og fram kemur í tilkynningu hennar til félagsmanna. Það stafar einfaldlega af því að það hafa aldrei verið efni til þess að einu eða neinu leyti. Þvert á móti þjónaði ég félaginu af einstakri trúmennsku, þó ég segi sjálfur frá, öll þau 35 ár sem ég kom að trúnaðastörfum fyrir félagið, með einum eða öðrum hætti. Hagur félagsins hefur blómgast með einstökum hætti á þessum tíma, ekki síst síðustu rúm 20 árin sem ég var framkvæmdastjóri félagsins.

Ef efni máls væru með þeim hætti sem látið er liggja að í bréfi stjórnarinnar til félagsmanna, hvers vegna er þá ekki sagt amen eftir efninu og þessari ólánsför framhaldið? Skildi það vera vegna þess að þá myndi fátækt þessa málatilbúnaðar alls opinberast? Athugun á bókhaldi félagsins síðstliðin tíu ár skilar engu þegar upp er staðið, það er staðreynd málsins. Öllum atriðum hefur verið svarað með fullnægjandi hætti, þó reynt sé að láta það líta öðru vísi út til að réttlæta þann fjáraustur sem þessi aðför að æru minni hefur kostað. Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús!

Staðreyndir málsins eru þessar. Ég stóð vörð um orðstír félagsins, eins og mér bar sem framkvæmdastjóri og fyrrum formaður félagsins. Ástæðan fyrir þessari aðför að æru minni er að ég var afdráttarlaus um það að núverandi formaður félagsins er ekki hæfur til þess að veita félaginu forystu vegna frétta af skattamálum hennar, sem ekki hafa verið skýrð með fullnægjandi hætti. Blaðamenn í félaginu og í landinu þurfa að horfast í augu við það.

Blaðamannafélagið er nú þegar á óheillabraut. Þar er sóað peningum í vitleysu, eins og vitundaherferð um blaðamennsku, á sama tíma og réttindi félagsmanna eru skert. Ætli það séu ekki núna 2 til 3 manneskjurnar sem eru að sinna því starfi sem ég sinnti einn í 20 ár og gera það mun verr en ég gerði. Ótrúlegt en því miður satt. Lítið félag eins og Blaðamannafélag Íslands þolir ekki slíka ráðstöfun fjármuna til langframa.

Höfundur er fyrrum framkvæmdastjóri BÍ.


Tengdar fréttir

Stjórnin kærir Hjálmar ekki en telur hann þó sekan

Stjórn Blaðamannafélags Íslands tók einróma ákvörðun á stjórnarfundi 21. júní um að leggja ekki fram kæru til lögreglu vegna háttsemi Hjálmars Jónssonar, fyrrverandi formanns og framkvæmdastjóra félagins, þrátt fyrir niðurstöðu lögfræðiálits Logos þar sem fram kemur að háttsemin hafi verið verulega ámælisverð og jafnvel refsiverð.

Furðar sig á ávirðingum vegna kaupa á vínarbrauði

Fyrrverandi formaður og framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands fer hörðum orðum um úttekt endurskoðunarfyrirtækis á reikningum félagsins í stjórnartíð hans. Hann furðar sig meðal annars á ávirðingum fyrir að hafa ekki fengið leyfi fyrir vínarbrauðskaupum fyrir eldri félagsmenn.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×