Viðskipti innlent

Hafa ekki nokkrar á­hyggjur af fækkun ferða

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp Reykjavík.
Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp Reykjavík. Vísir/Egill

Forsvarsmenn Hopp hafa ekki áhyggjur af minni notkun rafhlaupahjóla eftir nýjustu breytingar á umferðarlögum sem samþykktar voru af Alþingi þar sem ölvunarakstur rafhlaupahjóla er orðinn refsiverður. Þetta kemur fram í skriflegum svörum Sæunnar Óskar Unnsteinsdóttur framkvæmdastjóra Hopp Reykjavík.

Rafhlaupahjól voru áður í flokki með reiðhjólum þegar kemur að ölvunarakstri. Með breyttum lögum fara þau í flokk smáfarartækja og eiga þau sem nota rafhlaupahjólin nú undir áhrifum von á sektum fyrir athæfið. Miðað er við sömu mörk og akstur bíla og annarra vélknúinna ökutækja.

Blönduð umferð sé framtíðin

„Viðbrögð okkar við þessum nýju lögum eru bara mjög góð og sérstaklega að nú megi aka rafskútum á götum sem hafa 30 km hámarkshraða. Við trúum því að blönduð umferð sé best fyrir okkur öll og gerir borgarumhverfið okkar hægara og öruggara,“ segir Sæunn Ósk í skriflegu svari til Vísis.

Forsvarsmenn fyrirtækisins hafi ekki nokkrar áhyggjur af fækkun ferða á rafskútum. Þeir fagni því að fólk hugsi sig nú tvisvar um áður en það aki af stað á farartæki sem það getur ekki valdið vegna áfengis.

„Öryggi notenda okkar skiptir okkur miklu máli. Rafskútur eru einnig mikilvægar samgöngur fyrir næturhagkerfið okkar og öll þau sem þurfa að ferðast sérstaklega þegar engar almenningssamgöngur eru að finna. Svo erum við nú ekki öll undir áhrifum þótt komið sé yfir miðnætti!“

Hún segir leigubíla fyrirtækisins tilvalinn kost fyrir þau sem ferðast þurfi undir áhrifum, enda hafi forsvarsmenn Hopp alltaf talað fyrir því að áfengi og önnur vímuefni fari ekki saman við akstur. „Við búum í borg sem enn bíður eftir borgarlínu og öflugum almenningssamgöngum og á meðan við bíðum eftir þeim þá eru farartæki Hopp mikilvægt val fyrir fólk til að ferðast og til að breyta ferðavenjum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×