Viðskipti innlent

Spilafíklar geti lokað á fjár­hættu­spil hjá Indó

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Þjónustan er unnin í samstarfi við Samtök áhugafólks um spilafíkn.
Þjónustan er unnin í samstarfi við Samtök áhugafólks um spilafíkn. indó

Sparisjóðurinn Indó býður nú viðskiptavinum sínum að loka á fjárhættuspil. Þau sem kjósi að virkja lokunina muni ekki geta notað debetkortið sitt á veðmála- og fjárhættuspilavefsíðum né á flestum sölustöðum spilakassa.

Í fréttatilkynningu frá sparisjóðnum segir að þjónustan sé unnin í samstarfi við Samtök áhugafólks um spilafíkn og sé hugsuð til að aðstoða þau sem vilja að hætta að spila.

Í tilkynningunni segir að tæknilega sé ekki flókið að leyfa fólki að læsa á ákveðna tegund söluaðila þar sem allir söluaðilar sem taka við VISA kortum þurfa að skrá starfsemi hjá færsluhirði eftir flokki og því séu allar færslur merktar kóða starfseminnar, sem sé einfaldlega lokað á. Flóknara sé að loka á einstaka sölustaði með spilakassa en lokunin nær til þeirra helstu.

Lausnin er nú þegar tilbúin og þau sem hafa áhuga á að virkja lokun á fjárhættuspil geti gert það í sínum kortastillingum Indó-appinu.

„Þetta er þjónusta sem við fundum að var eftirspurn eftir. Með henni viljum við aðstoða fólk sem vill hætta að spila og því er lokunin algjörlega valfrjáls. Lokunin er heldur ekki endanleg, svo fólki má snúast hugur. Hins vegar þarf fólk að hafa samband við okkur til að opna aftur og svo líða 48 klukkustundir þar til hægt er að spila aftur,“ er haft eftir Hjördísi Elsu Ásgeirsdóttur, markaðsstjóra Indó.

„Við hjá samtökunum fögnum þessu framtaki og það frá litlum sparisjóði. Við höfum kallað eftir sambærilegum lausnum sem geta skipt miklu máli fyrir fólk sem vill hætta að spila. Við vonum nú bara að bankarnir fylgi eftir og fleiri bjóði upp á þennan möguleika,“ segir Alma Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka áhugafólks um spilafíkn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×