Innlent

Sinubruni í Gufu­nesi

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Eldur kviknaði í Gufunesi fyrr í kvöld
Eldur kviknaði í Gufunesi fyrr í kvöld Aðsend

Verið er að ráða niðurlögum smávægilegs sinubruna sem geysaði rétt fyrir neðan Hamrahverfið í Gufunesi fyrr í kvöld.

Stefán Kristinsson, varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, segir að verið sé að klára að slökkva eldinn. Það sé hætt að rjúka.

Ekki er vitað hvað olli brunanum, en það sé mjög ólíklegt að þetta hafi gerst að sjálfu sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×