Viðskipti erlent

Prufa að neyða not­endur til að horfa á aug­lýsingar

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Instagram prufukeyrir nú nýtt viðmót fyrir auglýsingar á miðlinum.
Instagram prufukeyrir nú nýtt viðmót fyrir auglýsingar á miðlinum. AP/Michael Dwyer

Samfélagsmiðillinn Instagram prufukeyrir nú nýtt viðmót á miðlinum sem neyðir notendur til að horfa á auglýsingar til að halda áfram að nota forritið. Áður fyrr gátu notendur skrunað fram hjá auglýsingum sem birtust þeim en það gæti heyrt sögunni til með nýrri uppfærslu.

Fréttastofa BBC greinir frá þessu. Nýja auglýsinga viðmótið kallast „auglýsingahlé“ og virkar þannig að notendur festast á auglýsingu og þurfa að bíða í ákveðinn tíma áður en þeir geta haldið áfram að nota samfélagsmiðilinn eins og þeir kjósa. 

Nýja viðmótið líkist því sem notendur kannast við á Youtube þar sem fólk þarf gjarnan að horfa á fimmtán til 30 sekúndur af auglýsingum áður en þeir geta haldið áfram að horfa á myndskeiðiðið sem þeir smelltu á.

Hagur auglýsenda í fyrirrúmi

„Stundum gætir þú þurft að horfa á auglýsingu áður en þú heldur áfram,“ segir í tilkynningu frá Meta, móðurfyrirtæki Instagram, þegar notendur smella á hnapp með frekari upplýsingum um nýja auglýsinga viðmótið.

Í tilkynningu frá Meta sagði að fyrirtækið væri ávallt að leita nýrra leiða til að auka hag auglýsanda á miðlum fyrirtækisins. Það á enn eftir að koma í ljós hvort að nýja viðmótið falli í kramið hjá auglýsendum en ljóst er að það hefur fallið í grýttan jarðveg hjá notendum. 

Einn notandi sagði á samfélagsmiðlinum X, áður Twitter, að hann hygðist sniðganga Instagram ef prufukeyrslan verður að veruleika fyrir notendur til framtíðar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×