Viðskipti innlent

Svarta sviðs­myndin blasir við ferða­þjónustunni í ár

Kristján Már Unnarsson skrifar
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, í viðtali í fréttum Stöðvar 2 í dag.
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, í viðtali í fréttum Stöðvar 2 í dag. Sigurjón Ólason

Horfur í ferðaþjónustu hafa snarversnað. Gistinóttum frá áramótum fækkaði um sex prósent og bókanir á hótelum fyrir sumarið eru tíu til fimmtán prósentum færri en á sama tíma í fyrra.

Þriðjungur gjaldeyristekna þjóðarinnar í fyrra kom af ferðaþjónustu og stóðu vonir til að þetta ár yrði jafnvel betra en það síðasta. En núna segir talsmaður ferðaþjónustunnar í fréttum Stöðvar 2 stefna í að myndin verði dekkri:

„Verði nær svörtu sviðsmyndinni í fjármálaáætlun heldur en þeirri björtu,” segir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.

Tölurnar frá áramótum virðast á yfirborðinu lofa góðu með sex prósenta fjölgun ferðamanna. Gistinóttum frá áramótum fækkaði hins vegar um sex prósent og í apríl um fimmtán prósent. Þá fækkaði ferðamönnum í apríl um þrjú prósent.

Þótt ferðamönnum hafi fjölgað um sex prósent frá áramótum hefur gistinóttum fækkað um sex prósent.Vilhelm Gunnarsson

„Þannig að af þessu má sjá að gistinætur á mann, þeim er að fækka nokkuð skarpt. Því fylgir að verðmæti á hvern ferðamann, þau eru einnig að minnka, sem eru hvort tveggja mjög vondar fréttir fyrir þjóðarbúið,” segir Jóhannes.

Og bókunarstaðan á gististöðum í sumar veldur áhyggjum:

„Um tíu til fimmtán prósentum lægri heldur en hún var á sama tíma í fyrra fyrir sumarmánuðina. Og sú staða er heldur slakari þegar komið er lengra frá höfuðborgarsvæðinu.”

Frá ferðaþjónustu við Jökulsárlón.Vilhelm Gunnarsson

Fækkun gistinátta er sérlega slæm fyrir landsbyggðina. Það þýðir að ferðamenn sem koma til landsins um Keflavíkurflugvöll fara síður langt út fyrir suðvesturhornið.

„Þá fara menn styttra um landið og styttra út frá hringveginum. Þannig að þetta bitnar kannski ekki síst á þeim sem eru kannski ekki í alfaraleið.”

Þegar spurt er um skýringar segir Jóhannes marga hafa nefnt eldgosin.

Reykjaneseldar eru sagðir fæla ferðamenn frá Íslandi. Frá yfirstandandi eldgosi í Sundhnúksgígaröðinni.Vilhelm Gunnarsson

„En það er kannski ekki höfuðþátturinn. Verðlag hefur hækkað hér töluvert. Við höfum verið með þrálátari verðbólgu heldur en í samkeppnisríkjunum.

Þá hafi stjórnvöld slökkt á fjármagni til landkynningar.

„Við þekkjum þetta í öllum vörum. Ef við erum ekki að segja söguna okkar þá eru einhverjir aðrir að segja sínar sögur og þær komast betur til skila,” segir framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Play sér ekki til­efni til að breyta af­komu­spánni þrátt fyrir aukna samkeppni

Mikil samkeppni er frá alþjóðlegum flugfélögum í flugi yfir Atlantshafið í sumar með tilheyrandi þrýstingi til lækkunar á flugfargjöldum, að sögn forstjóra Play, en vegna ýmissa aðgerða sem hefur verið ráðist í til að mæta krefjandi rekstrarumhverfi telur félagið ekki tilefni til að fylgja í fótspor Icelandair og breyta afkomuspá sinni fyrir þetta ár. Hlutabréfaverð Play hefur fallið skarpt síðustu tvo viðskiptadaga og er tæplega fimmtíu prósentum lægra miðað við útboðsgengið í nýlega afstaðinni hlutafjáraukningu.

Hætta við hlutafjárútboð og skráningu Íslandshótela

Ákveðið hefur verið að hætta við hlutafjárútboð Íslandshótela og skráningu félagsins í Kauphöllina. Er það vegna þess að ekki fengust áskriftir fyrir öllum boðnum hlutum og hættu seljendur því við.

Hátt verð fæli ferðamanninn frá Íslandi

Blikur eru á lofti þegar kemur að bókunum ferðamanna á hótelgistingu hér á landi í sumar. Færri bókanir voru í apríl heldur en verið hefur. Formaður Félags fyrirtækja í hótel og gistiþjónustu segir Ísland dýrt og það sé farið að hafa áhrif.

Dýrtíðin skerði samkeppnishæfni áfangastaðarins Íslands

Stjórnvöld verða að taka alvarlega þær blikur sem á lofti eru í ferðaþjónustu. Þetta segir Bjarnheiður Hallsdóttir formaður Samtaka ferðaþjónustunnar sem varar við þeim efnahagslegu afleiðingum sem samdráttur í greininni hefði í för með sér fyrir þjóðarbúið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×