Lífið

Klæddu sig upp sem fram­bjóð­endur

Sólrún Dögg Jósefsdóttir og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa
Efstu þrír frambjóðendur kvöldsins, Halla, Katrín og Halla. En það er auðséð.
Efstu þrír frambjóðendur kvöldsins, Halla, Katrín og Halla. En það er auðséð. Vísir

Í einu metnaðarfyllsta kosningarpartýi kvöldsins klæddu allir gestir sig sem forsetaframbjóðendur. Berghildur Erla leit við og hitti „frambjóðendurna“.

„Ég get leiðrétt það sem ég hef áður sagt og sagt, vér mótmælum engin,“ segir sviðshöfundurinn Egill Andrason, klæddur sem Jón Sigurðsson, sem einhvern veginn slæddist með í veisluna. Hann segir þau hafa átt ánægjulegt kvöld og haldið sína eigin kosningu, og þar bar Jón Gnarr sigur úr býtum.

Egill Andrason sem Jón Sigurðsson.Vísir

Hlynur Blær Sigurðsson, í gervi Jóns Gnarr líst mjög vel á niðurstöðurnar úr kosningunum þeirra. „En hinar kosningarnar sem þið hafið verið að fjalla um eru ekki eins frábærar fyrir mig. En jújú, við óskum Höllu Tómasdóttur til hamingju með tilvonandi sigur.“

Með honum var Unnur Lilja Arnarsdóttir í gervi Jógu Gnarr. 

Halla Tómasdóttir, eða öllu heldur fulltrúi hennar sagðist mjög sátt við niðurstöðurnar. „OG bara vonast til að kvöldið bjóði okkur eitthvað betra.“

Katrín, ég sé að þú horfir á hana, en þú ert ekkert reið á svipinn?

„Neinei! Veistu það, ég er svo ánægð að sjá kynsystur mína hér í forystunni og ég er ótrúlega ánægð með kvöldið og spennt að sjá hvernig fer.“

Steinunn Birta Ólafsdóttir og Tjörvi Jónssonvoru að auki mætt í partíið, í gervi Baldurs og Felix, sem hafa þurft að játa ósigur. „Við erum mættir hér með íslenska lambið í lopapeysu. Við fögnum öllu sem kjósendur kjósa!“

Júlíus Þór Björnsson Waage sem Ástþór Magnússon.Vísir

„Ég er eiginlega bara glaður að vera hérna. Mér finnst þetta mjög skemmtilegt,“ segir Jóhann Þór Bergþórsson í gervi Viktors Traustasonar. 

Edda Kristín Bergþórsdóttir sem Steinunn Ólína tók í svipaðan streng. „Ég er bara ánægð með kvöldið svo lengi sem Kata Jak er ekki með forystu.“

Edda Kristín Bergþórsdóttir sem Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir.

Ásdís Rán, hvernig líst þér á þetta?

„Mér finnst þetta bara æðislegt,“ segir Ína Soffía Hólmgrímsdóttir sem Ásdís Rán. 

Og Ástþór, þetta er nú búið að vera strembið, eða hvað?

„Ég er búinn að vera að spá og spegúlera í þessum niðurstöðum sem voru sýndar í kvöld. Og ég held að þetta gangi ekki alveg upp, við þurfum að skoða þetta aðeins betur,“ segir Júlíus Þór Björnssoní gervi Ástþórs,

Dýrunn Elín Jósefsdóttir sem Halla Tómasdóttir. Vísir
Brynja Sigurðardóttir sem Katrín Jakobsdóttir.Vísir
Rebekka Hvönn Valsdóttir sem Halla Hrund Logadóttir.Vísir
Ólafur Ragnar Grímsson. Gabríel Ingimarsson lék hann. Vísir
Fannar Sigurðsson sem Eiríkur Ingi Jóhannsson.Vísir
Hlynur Blær Sigurðsson og Unnur Lilja Arnarsdóttir sem Jón Gnarr og Jóga Gnarr.Vísir
Jóhann Þór Bergþórsson sem Viktor Traustason.Vísir
Steinunn Birta Ólafsdóttir & Tjörvi Jónsson sem Baldur og Felix.Vísir
Ína Soffía Hólmgrímsdóttir sem Ásdís Rán Gunnarsdóttir.Vísir
Þessi er kunnugleg!Vísir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×