Skoðun

Þess vegna er Halla Hrund efst

Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir skrifar

Þegar Halla Hrund tilkynnti framboð sitt, skaust hún upp í skoðanakönnunum og situr enn hæst. Hún er því besti kostur okkar til að fá forseta sem kemur úr röðum almennings. Hún er góður kostur fyrir margar sakir og framboð hennar á sér svipaða upprunarsögu og framboð tveggja frábærra forseta, Vigdísar og Guðna.

Forsetaferill Vigdísar og Guðna

Vigdís ætlaði aldrei að verða forseti. Það var ekki fyrr en fólk fór að skrifa greinar í dagblöðin til að hvetja hana til framboðs að hún tók málið alvarlega. Sama gerðist með Guðna; hann ætlaði aldrei að verða forseti en mætti í Kastljóssviðtal til að ræða sögulegt gildi forsetaembættisins, og fólk tók eftir því að hann var tilvalinn forseti. Það sama gerðist með Höllu Hrund. Þegar orkumálastjórinn mætti í þáttinn hjá Gísla Marteini og spilaði þar á harmonikku, varð hún svo forsetaleg að stofnaður var Facebook-hópur af fólki sem vildi Höllu Hrund sem forseta. Forsetaembættið er í sjálfu sér mjög valddreifandi, og því þykir mér hughreystandi að hafa þar einstakling sem sækist ekki eftir völdum, heldur svarar ákalli landsmanna um að þjóna þjóðinni.

Skilningur á orku- og auðlindamálum

Halla Hrund hefur góðan skilning og hugsjón í orku- og auðlindamálum, sem ég tel muni verða eitt af stærstu úrlausnarmálum næstu ára. Íslenska þjóðin þarf að ákveða hversu mikið og hverjir fá að nýta auðlindir okkar. Þess vegna tel ég mikilvægt að forsetinn skilji mikilvægi náttúruauðlinda bæði sem stóran hluta af framþróun Íslands og mikilvægi verndunar þeirra.

Samstaða í loftslagsmálum

Of oft skiptumst við í hópa, og ein stærsta hindrun okkar í loftslagsmálum er að við getum ekki komið okkur saman um hvernig við ætlum að nýta auðlindir okkar. Forsetinn þarf að geta talað til beggja hópa, og það getur Halla Hrund svo sannarlega, komið með framtíðarsýn sem tekur mið af báðum markmiðum: framþróun og verndun. Þessi eiginleiki, að geta skilið báðar hliðar samfélagsins og talað til allra, er einn mikilvægasti eiginleiki forseta, og eiginleiki sem ég hef séð skýrt hjá Höllu Hrund.

Traust og heiðarleiki

Halla hefur sýnt í starfi sínu sem Orkumálastjóri að hún leyfir ekki sérhagsmunaöflum að fá hvað sem þau vilja, heldur heiðrar hún ávallt að almenningur er eigandi auðlinda Íslands. Þannig manneskju vil ég í forsetaembættið, því auðvitað liggur þar neyðarhemillinn ef myndast hefur gjá milli þjóðar og þings. Ég treysti Höllu Hrund til þess að taka ákvörðun sem byggir á því að auðlindir Íslands séu í eigu þjóðarinnar.

Listinn af ástæðum til þess að kjósa Höllu er langur, og því kemur ekki á óvart að hún mælist hæst.

Höfundur er nemandi við hagfræðideild Harvard-háskóla




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×