Lífið

Elísa Viðars og Rasmus nefndu soninn

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Elísa og Ramsus eignuðust dreng 2. mars síðastliðinn.
Elísa og Ramsus eignuðust dreng 2. mars síðastliðinn. Skjáskot

Knattspyrnuparið Elísa Viðarsdóttir og Rasmus Christiansen nefndu son sinn við fallega athöfn um helgina. Drengurinn heitir Theodór Sindri Christiansen.

Elísa greindi frá gleðitíðindunum á samfélagsmiðlum í gær. Á myndinni má sjá fjölskylduna prúðbúna á skírnardaginn.  

Um er að ræða annað barn parsins en fyrir eiga þau eina stúlku.

Elísa greindi frá óléttunni í september í fyrra þar sem hún sagði fjölskylduna spennta að jafna út leikinn í lok febrúar. Drengurinn lét bíða eftir sér og kom í heiminn 2 mars síðatliðinn, nokkrum dögum eftir settan dag.

„Ef allt gengur að óskum þá mun okkur litlu fjölskyldunni færast liðsstyrkur í lok febrúar. Við foreldrarnir höfum notið yfirtölunnar en erum spennt að jafna út leikinn,“ skrifaði Elísa við mynd af fjölskyldunni með sónarmynd við hönd.

Elísa er leikmaður Vals þar sem hún hefur verið fyrirliði síðastliðin ár. Auk þess á hún á 54 A-landsliðsleiki að baki. Rasmus leikur með Aftureldingu og er dönsukennari við Hagaskóla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×