Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Atli Ísleifsson skrifar 10. maí 2024 13:23 Tvær af hverjum fimm brottförum voru tilkomnar vegna Bandaríkjamanna og Breta. Vísir/Vilhelm Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 137 þúsund í nýliðnum apríl samkvæmt mælingum Ferðamálastofu. Um er að ræða fimm þúsund færri brottfarir en mældust í apríl í fyrra (-3,5 prósent). Ríflega þriðjungur brottfara voru tilkomnar vegna Bandaríkjamanna og Breta.
Frá þessu segir í tilkynningu frá Ferðamálastofu. Þar kemur fram að brottfarir Íslendinga hafi verið um 45 þúsund í apríl. „Flestar brottfarir í apríl voru tilkomnar vegna Bandaríkjamanna, 32.400 talsins, eða tæplega fjórðungur (23,6%) heildarbrottfara. Bretar voru í öðru sæti, um 16.000 eða um ein af hverjum tíu brottförum (11,7%). Brottfarir Pólverja voru í þriðja sæti eða 6,1% af heild og Frakkar í því fjórða (5,2%). Þar á eftir fylgdu Þjóðverjar (4,8%), Ítalir (4,7%), Danir (4,3%), Kanadamenn (3,3%), Spánverjar (4,0%) og Kínverjar (3,6%). Brottfarir erlendra farþega frá áramótum Frá áramótum hafa um 593 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi en á sama tíma í fyrra voru brottfarir þeirra um 561 þúsund talsins. Um er að ræða 5,7% fjölgun milli ára. Samtals voru brottfarir á tímabilinu janúar til apríl í ár um 94,4% af þeim brottförum sem þær mældust á sama tímabili metárið 2018. Brottfarir Íslendinga Brottfarir Íslendinga voru um 45 þúsund í apríl, 11.100 færri en í apríl 2023 (-19,8%). Hafa ber í huga að utanferðir Íslendinga í tengslum við páska voru í mars í ár en í apríl í fyrra. Frá áramótum (janúar-apríl) hafa um 180 þúsund Íslendingar farið utan en á sama tíma í fyrra voru brottfarir þeirra um 176 þúsund. Um er að ræða 1,9% fjölgun milli ára,“ segir í tilkynningunni.
Ferðamennska á Íslandi Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Hneykslaðist á „óútfærðum afkomubætandi aðgerðum“ Viðskipti innlent Plasttappamálið flaug í gegnum þingið Neytendur Í fullkomnu frelsi: „Þar sem er heyskapur er ég“ Atvinnulíf Íhuga hærri tolla á alla Viðskipti erlent Ræðst í byggingu átta húsa í Hvammsvík Viðskipti innlent Einn vinsælasti tengiltvinnbíll Íslendinga snýr aftur Samstarf Vörur gerðar af meisturum fyrir meistara Samstarf Eldisfiskur fluttur út fyrir 54 milljarða króna Viðskipti innlent Deila um þvottahús stöðvar ekki Hreint í bili Viðskipti innlent BYKO opnar nýja og glæsilega timburverslun Samstarf Fleiri fréttir Hneykslaðist á „óútfærðum afkomubætandi aðgerðum“ Deila um þvottahús stöðvar ekki Hreint í bili Eldisfiskur fluttur út fyrir 54 milljarða króna Ræðst í byggingu átta húsa í Hvammsvík Trúir ekki að menn loki fiskvinnslu til að mótmæla veiðigjöldum „Þetta er afnotagjald“ Play komið með flugrekstrarleyfi á Möltu Jón Ólafur í framboði til formanns SA Eigendaskipti hjá Fótbolta.net Feðgarnir nú aftur einu hluthafarnir í Eyri Invest Eyjólfur Árni hættir hjá SA Hagnaðist um tvo milljarða: Ljóst að greinin megi ekki við hækkunum Verðbólga heldur áfram að hjaðna Versta sviðsmyndin sé að lenda á milli Evrópu og Bandaríkjanna í tollastríði Íhuga að sameina lífeyrissjóði „Reiðarslag fyrir þau þorp þar sem stundaðar eru veiðar og vinnsla“ Tollastríðið gæti vel haft áhrif á lífskjör almennings Salóme tekur við af stofnanda Ísorku Helgi ráðinn sölustjóri Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Kemur nýr inn í fjármálastöðugleikanefnd Mikil óvissa í alþjóðamálum gæti reynt á þjóðarbúið Segir útlitið svart fyrir sjávarútveginn og breytingarnar illa unnar „Íslenskur sjávarútvegur er burðarás í atvinnulífinu“ Lýsa yfir verulegum áhyggjum af tvöföldun veiðigjalda Allt að tvöfalda veiðigjöldin og segja útgerðina þola það vel Aflinn verði verkaður annars staðar eftir breytingar stjórnarinnar Sækja á sjötta milljarð króna Laun eftir kjarasamningi „gervistéttarfélags“ sögð tugum þúsunda lægri Spá 1,8 prósent hagvexti í ár og 2,7 prósent verðbólgu á næsta ári Sjá meira